Sveiflur kísilþörunga í Mývatni. Kísilþörungagreiningar úr setlagakjarna frá Mývatni

Vistkerfi Mývatns og Laxár hefur þótt áhugavert rannsóknaefni síðustu áratugina. Árið 1975 var komið á laggirnar sérstöku vöktunarverkefni á svæðinu. Af því leiddi víðtækur gagnagrunnur sem sífellt bætist við. Eftirlit og rannsóknir á svæðinu hafa sýnt greinilegar sveiflur í lífríki vatnsins í tíma...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Theódóra Matthíasdóttir 1979-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2009
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/3308
Description
Summary:Vistkerfi Mývatns og Laxár hefur þótt áhugavert rannsóknaefni síðustu áratugina. Árið 1975 var komið á laggirnar sérstöku vöktunarverkefni á svæðinu. Af því leiddi víðtækur gagnagrunnur sem sífellt bætist við. Eftirlit og rannsóknir á svæðinu hafa sýnt greinilegar sveiflur í lífríki vatnsins í tíma og rúmi. Sveiflur í mýflugnastofni vatnsins hafa vakið hvað mestan áhuga fræðimanna. Sumarið 2006 voru teknir borkjarnar úti fyrir Höfða í Mývatni. Samanstóðu þeir af lífrænum setlögum þar sem tímaupplausn var um það bil 1 ár. Voru kísilþörungar efstu tæplega 35 cm setsins greindir en þeir eru nær helmingur af fæðuuppsprettu mýflugna vatnsins, og kísilþörungaflóran á botni Mývatns því ein af undirstöðum lífríkis Mývatns. Greinilegar en óreglulegar sveiflur komu fram í hlutfalli kísilþörunga í setinu með dýpi. Var kjarnanum skipt í þrjú tímabil eftir hlutfalli kísilþörunga í setinu. Niðurstöðurnar voru settar í samhengi við niðurstöður úr litarefna-greiningum (fucoxanþín og diatoxanþín) og eftirliti á mýflugnastofni Mývatns. Í ljós kom nokkurt samræmi milli breytinga í litarefnum og kísilþörungum. Sveiflur kísilþörunga í setinu eru aftur á móti öfugar við mýflugusveiflu vatnsins og má af því ráða að þegar stofn mýflugna er í hámarki gangi mýflugulirfurnar á fæðuuppsprettu sína. Veldur þetta tímabundinni hnignun í stofni kísilþörunga. Stofninn nær sér þó aftur á strik þar sem mýflugnastofninn minnkar hratt vegna fæðuskorts. Þetta er í samræmi við líkanreikninga af samspili mýflugulirfa og fæðu þeirra í Mývatni.