Landscape classification in Iceland and its underlying geological factors

Aðferð til flokkunar á landslagi út frá sjónrænum eiginleikum hefur nýlega verið þróuð á Íslandi í tengslum við Rammaáætlun um nýtingu vatnsafls og jarðvarma. Hún byggist á 23 sjónrænum eiginleikum svo sem útlínum og formum í landslagi, grunnlögun landslagsins, fjölbreytileika gróðurs og gróðurþekju...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Hlynur Bárðarson 1982-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:English
Published: 2009
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/3299
Description
Summary:Aðferð til flokkunar á landslagi út frá sjónrænum eiginleikum hefur nýlega verið þróuð á Íslandi í tengslum við Rammaáætlun um nýtingu vatnsafls og jarðvarma. Hún byggist á 23 sjónrænum eiginleikum svo sem útlínum og formum í landslagi, grunnlögun landslagsins, fjölbreytileika gróðurs og gróðurþekju, fjölbreytileika í áferð og munstri, breytileika í hæð, víðsýni. Hér var þessari aðferð beitt á landslagssvæði yfir landið allt með það að markmiði að greina og flokka helstu landslagsgerðir á Íslandi. Fylgni landslags við jarðsögu og berggrunn var einnig könnuð. Við val á svæðum var byggt á 10x10 km hnitakerfi Náttúrfræðistofnunar Íslands. Það nær til landsins alls en hér var valinn þriðji hver reitur í þriðju hverri röð. Í þessari rannsókn voru notaðir 98 reitir. Farið var í þá alla og gögnum safnað í fyrirfram þekktum GPS punkti í miðjum reit. Gátlisti með áðurnefndum 23 sjónrænum breytum var fylltur út á hverju svæði og myndir teknar til heimildasöfnunar. Eiginleikum var gefin einkunn á bilinu 0-5 eftir magni eða þéttleika. Gögnin voru meðhöndluð með kláðugreiningu (Cluster Analysis). Prófað var að aðskilja þá eiginleika sem höfðu lægsta tíðni (endurtekin form og jökla), og skilaði það hærra bootstrap gildi og hámarkaði betur einsleitni innan hópa og mun milli hópa. Gögnin, án áðurnefndra breyta, voru síðan unnin frekar með meginþáttagreiningu (Principal Components Analysis) til að komast að því hvaða eiginleikar vógu þyngst í hverjum landslagsflokki fyrir sig Niðurstöðurnar benda til þess að 8 megingerðir landslagshópa sé að finna á Íslandi. Þær eru: (1) Strendur sem ásamt fjörðum greinast fá öðrum flokkum vegna staðsetningar við sjó. Strendur skiptust í tvo undirhópa klettastrendur og flatar sandstrendur. (2) Firðir sem einkennast af U-laga grunnformi í landinu. Firðir eru aðallega á eldri tertíera hluta landsins þ.e. Vestfjörðum, Mið-Norðurlandi og Austfjörðum. (3) Djúpir U-laga dalir inn á milli hárra fjalla með mikilli gróðurþekju (4) Grynnri inndalir eru fáliðaðasti flokkurinn og greinast m.a. frá flokki 3 ...