Svörun Óseyrarbrúar við Suðurlandsskjálftanum 2008

Í maí 2008 reið jarðskjálfti að stærð 6,3 Mw yfir Suðurland með upptök á milli Selfoss og Hveragerðis. Óseyrarbrúin, sem liggur yfir ós Ölfusár, skemmdist í jarðskjálftanum og er það markmið þessa verkefnis að skoða svörun brúarinnar í skjálftanum og skoða ástæður skemmdanna. Tölvulíkan var gert af...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Magni Hreinn Jónsson 1983-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2009
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/3298
Description
Summary:Í maí 2008 reið jarðskjálfti að stærð 6,3 Mw yfir Suðurland með upptök á milli Selfoss og Hveragerðis. Óseyrarbrúin, sem liggur yfir ós Ölfusár, skemmdist í jarðskjálftanum og er það markmið þessa verkefnis að skoða svörun brúarinnar í skjálftanum og skoða ástæður skemmdanna. Tölvulíkan var gert af brúnni í forritinu SAP2000. Tvær ólínulegar greiningaraðferðir voru notaðar: Annars vegar hefðbundin ólínuleg greining sem er bein tegrun jafnvægislíkinga og hins vegar hraðvirk ólínuleg greining þar sem stuðst er við sveifluform urðarvirkisins. Aðferðunum bar ágætlega saman. Einnig var framkvæmd línuleg svörunarrófsgreining á brúnni þar sem ólínuleg svörun jarðskjálftalega er nálguð með jafngildri línulegri stífni og deyfingu. Töluverður munur var á línulegu og ólínulegu aðferðunum svo að tæplega er hægt að mæla með línulegri greiningu á brú af þessari gerð nema við forskoðun. Niðurstöður allra aðferðanna passa vel við þær skemmdir sem urðu á brúnni. En skemmdirnar urðu á einingum sem áttu að takmarka láréttar færslur brúardekksins. Einnig sást að markmiðum um minni sniðkrafta í brúardekki nást ekki með því legukerfi sem er til staðar. Með endurhönnun á brúnni var sýnt fram á að hægt er að nota eingöngu blýgúmmílegur til einangrunar á brúnni. Með því að stilla stífni leganna eftir áslægum krafti í legum, vegna eiginálags, hreyfist brúardekkið sem ein heild og sniðkraftar verða minni en fyrir endurhönnun.