Notkun Business Model Canvas til stefnumótunar sprotafyrirtækja: Hvernig verkfæri viðskiptafræðinnar eru nothæf í uppbyggingu Business Model Canvas.

Business Model Canvas (BMC) hefur farið sigurför um heiminn og tækið orðið mjög þekkt á meðal frumkvöðla á Íslandi í dag. Sífellt fleiri sprotafyrirtæki spretta upp úr öllum áttum á íslenskum vinnumarkaði en mörg þeirra fara í gegnum viðskiptahraðla þar sem hvatt er til nýtingar BMC. Í þessari ritge...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Ingimar Logi Guðlaugsson 1996-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2019
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/32802
Description
Summary:Business Model Canvas (BMC) hefur farið sigurför um heiminn og tækið orðið mjög þekkt á meðal frumkvöðla á Íslandi í dag. Sífellt fleiri sprotafyrirtæki spretta upp úr öllum áttum á íslenskum vinnumarkaði en mörg þeirra fara í gegnum viðskiptahraðla þar sem hvatt er til nýtingar BMC. Í þessari ritgerð verður gerð grein fyrir gagnrýni íslenskra frumkvöðla í garð notkunar á Business Model Canvas til stefnumótunar sprotafyrirtækja og skoðað verður hvernig hægt er að svara tillögum þeirra til breytinga á líkaninu. Markmið þessarar ritgerðar var að svara því hver helsta gagnrýni íslenskra frumkvöðla er á notkun Business Model Canvas til stefnumótunar sprotafyrirtækja og hvort það sé svigrúm til umbóta á líkaninu. Gerð var rannsókn sem byggir á eigindlegum aðferðum og aflað upplýsinga frá tíu frumkvöðlum sem höfðu allir reynslu á að nota BMC við stefnumótun sprotafyrirtækja. Niðurstöðurnar benda til þess að BMC geti hjálpað til við að fá yfirsýn yfir viðskiptahugmynd en að stundum hafi að hluta til, verið erfitt að skilja líkanið . Viðmælendur í rannsókninni settu fram tillögur til umbóta á líkaninu og leitaðist höfundur við að uppfylla þær í þessari ritgerð. Það sem höfundi þátti áhugaverðast við notkun BMC var að þrátt fyrir að það taki einungis stuttan tíma að fylla líkanið út, þá hefur útfyllt BMC ómetanlegt virði fyrir hugmyndasmiðinn. Líkanið veitir mikilvæga yfirsýn til þess að allir væntir hagsmunaaðilar geti vitað hvernig rekstur myndi virka, hvernig tekna yrði aflað og hvernig kostnaði yrði háttað ef farið yrði út í rekstur. Business Model Canvas (BMC) has triumphed over the world and is very popular amongst entrepreneurs in Iceland today. More and more start-ups are emerging from all directions in the Icelandic labour market, but many of them go through a business accelerator where it is encouraged to use BMC. This thesis will explain the criticism of Icelandic entrepreneurs in terms of use of Business Model Canvas for strategy formation and implementation in start-up companies and how one can respond to ...