Fullveldi í mótun: Framþróun í sjálfstæðisbaráttu Grænlendinga

Í þessu lokaverkefni til MA gráðu í alþjóðasamskiptum er fjallað um sjálfstæðisbaráttu Grænlendinga og þær aðgerðir sem ríkisstjórn Grænlands hefur áformað til að færa Grænlendinga nær þeirri stöðu að geta lýst yfir sjálfstæði frá Dönum. Rannsóknin er tilviksrannsókn þar sem sjálfstæðisbarátta Grænl...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Ástríður Jónsdóttir 1979-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2019
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/32625
Description
Summary:Í þessu lokaverkefni til MA gráðu í alþjóðasamskiptum er fjallað um sjálfstæðisbaráttu Grænlendinga og þær aðgerðir sem ríkisstjórn Grænlands hefur áformað til að færa Grænlendinga nær þeirri stöðu að geta lýst yfir sjálfstæði frá Dönum. Rannsóknin er tilviksrannsókn þar sem sjálfstæðisbarátta Grænlendinga er skoðuð út frá kenningum um fullveldi, smáríki og frumbyggja og er efni ritgerðarinnar fyrst og fremst unnið upp úr fyrirliggjandi heimildum. Í fyrri hluta rannsóknarinnar eru helstu áfangar í sjálfstæðisbaráttu Grænlendinga, heimastjórnarlögin frá 1979 og sjálfstjórnarlögin frá 2009, sett í sögulegt samhengi. Í síðari hlutanum er rýnt í aðgerðaáætlun sem ríkisstjórn Grænlands gaf út árið 2016. Þar verður leitað svara við þeirri spurningu hvort aðgerðirnar séu líklegar til þess að breyta aðstæðum á Grænlandi á þann hátt að hægt sé að uppfylla þær forsendur sem þurfa að vera til staðar til þess að hægt sé að lýsa yfir sjálfstæði. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að áætlanir ríkisstjórnarinnar eru vel til þess fallnar að byggja upp fjölbreyttan efnahag á Grænlandi ásamt því að styrkja innviði og stuðla að uppbyggingu mannauðs en allt eru það atriði sem sérfræðingar hafa nefnt sem helstu hindranir Grænlands í átt til sjálfstæðis. Þar sem margar af aðgerðum áætlunarinnar hafa þegar komið til framkvæmda, í samræmi við þær tímasetningar sem gefnar voru upp í áætluninni, er því haldið fram að Grænlendingar hafi svo sannarlega tekið stjórn á eigin vegferð. Þrátt fyrir þetta er of snemmt að segja til um hvort þessar aðgerðir muni hafa áhrif á hvenær Grænland geti lýst yfir sjálfstæði. This Master’s Dissertation explores Greenland’s ongoing journey to independence and analyzes actions put forth by the Government of Greenland intended to enhance Greenland’s sovereignty in relation to Denmark. The Dissertation is a case study of Greenland’s struggle for independence viewed through theories of sovereignty, small statehood and indigeneity. The source material analyzed primarily consists of public documents. The first ...