Staðbundin áhrif skemmtiferðaskipa á Seyðisfjarðarkaupstað

Ritgerð þessi fjallar um staðbundin áhrif skemmtiferðaskipa á Seyðisfjarðarkaupstað, var markmiðið að kanna viðhorf íbúa til ferðaþjónustu og aukinnar umferðar skemmtiferðaskipa og skoða hvaða tækifæri gætu leynst innan ferðaþjónustunnar. Ferðaþjónustan er vaxandi atvinnugrein um allan heim og hefur...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Ríkey Ásta Þorsteinsdóttir 1996-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2019
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/32568
Description
Summary:Ritgerð þessi fjallar um staðbundin áhrif skemmtiferðaskipa á Seyðisfjarðarkaupstað, var markmiðið að kanna viðhorf íbúa til ferðaþjónustu og aukinnar umferðar skemmtiferðaskipa og skoða hvaða tækifæri gætu leynst innan ferðaþjónustunnar. Ferðaþjónustan er vaxandi atvinnugrein um allan heim og hefur mikilvægi atvinnugreinarinnar hérlendis vaxið töluvert á síðustu árum. Ferðaþjónustan sem atvinnugrein hefur tekið breytingum og þróast töluvert á síðustu áratugum og hefur ferðamennska skemmtiferðaskipa aukist um allan heim. Sendur var út spurningalisti á rafrænu formi og Seyðfirðingar voru hvattir til að svara. Notast var við vefforritið Survey Monkey við gerð spurningakönnunarinnar og voru niðustöður greindar í Excel. Úrvinnsla gagna úr spurningakönnuninni sýndi að um 80,4% þátttakenda töldu ferðaþjónustuna skipta frekar miklu máli fyrir kaupstaðinn og 64,2% voru sammála um að ferðaþjónustan væri framtíðaratvinnuvegur Seyðisfjarðar. Langflestir þátttakendur voru sammála um að atvinnugreinin hefði jákvæð áhrif á bæjarlíf kaupstaðarins og 77,4% sögðust vera hlynntir þeirri þróun sem hefði átt sér stað undanfarin ár með komu skemmtiferðaskipa til Seyðisfjarðar.