"Hvert viljum við stefna?“: Staða lyfjafræðinga í apótekum á Íslandi

Á síðustu áratugum hefur hlutverk lyfjafræðinga í apótekum tekið breytingum frá framleiðslu og dreifingu lyfja í átt að faglegri þjónustu lyfjafræðings sem gegnir mikilvægum þætti í heilbrigðiskerfinu. Víða erlendis hafa lyfjafræðingar í apótekum útvíkkað starfsvið sitt í tengslum við að veita fagle...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Tinna Harðardóttir 1990-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2019
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/32555
Description
Summary:Á síðustu áratugum hefur hlutverk lyfjafræðinga í apótekum tekið breytingum frá framleiðslu og dreifingu lyfja í átt að faglegri þjónustu lyfjafræðings sem gegnir mikilvægum þætti í heilbrigðiskerfinu. Víða erlendis hafa lyfjafræðingar í apótekum útvíkkað starfsvið sitt í tengslum við að veita faglega þjónustu til einstaklinga. Fagleg þjónusta lyfjafræðinga er mismikil á milli landa en er nánast engin á Íslandi, þrátt fyrir að lög vísi í skyldur apóteka á því sviði. Markmið verkefnisins var því að rannsaka núverandi stöðu lyfjafræðinga í apótekum á Íslandi. Kannað var hvort þurfi og þá hvernig hægt sé að auka hlutverk apótekslyfjafræðinga í tengslum við aukna faglega þjónustu. Auk þess var viðhorf lyfjafræðinga til lækna rannsakað og núverandi samskipti þeirra á milli könnuð. Ritgerðin er byggð á eigindlegri aðferðarfræði og var hentugleikaúrtak notað við val þátttakenda. Gagnasöfnun fór fram frá desember 2018 til mars 2019. Tekin voru hálf-opin viðtöl við tólf starfandi lyfjafræðinga í apótekum á höfuðborgarsvæðinu. Viðtölin voru hljóðrituð og afrituð orðrétt. Gögnin voru flokkuð í þemu og síðan greind með eigindlegri innihaldsgreiningu. Niðurstöður sýndu að þættir sem hafa áhrif á að fagleg þjónusta lyfjafræðings standi til boða í apótekum hérlendis voru: skortur á lyfjafræðingum á vakt, tímaskortur lyfjafræðings, greiðsla þjónustunnar, samstarf lækna og lyfjafræðinga, uppsetning apóteka og, færni og klínísk þjálfun lyfjafræðings til að veita faglega lyfjafræðiþjónustu. Jafnframt sýndu niðurstöðurnar að samskipti lækna og apótekslyfjafræðinga eru góð en snúast fyrst og fremst um praktísk atriði en ekki klínísk. Niðurstöður rannsóknarinnar bentu sterklega á að rekstrarumhverfi apóteka á Íslandi þurfi fyrst og fremst að breytast svo að lyfjafræðingar geti aukið hlutverk sitt með áherslu á fræðslu og faglegri þjónustu. In the last decades the community pharmacist’s role has changed significantly from production and dispensing of medicine to more cognitive pharmaceutical service which functions as an important ...