Summary: | Í þessari ritgerð er greint frá rannsókn sem hafði það að markmiði að kanna með hvaða hætti sveitarfélög landsins veita seinfærum foreldrum stuðning. Markmið rannsóknar var að fá fram reynslu barnaverndarstarfsmanna af þjónustu sem sveitarfélög landsins bjóða upp á fyrir seinfæra foreldra. Notast var við blandaða aðferð í rannsókninni, þar sem bæði eigindlegum og megindlegum aðferðum var beitt. Tekin voru viðtöl við þrjá barnaverndarstarfsmenn og símaviðtöl við 25 stjórnendur innan málaflokksins hjá sveitarfélögum. Niðurstöður sýna að margt er vel gert og starfsmenn lýsa áhuga á að veita góða þjónustu. Flest sveitarfélög geta þó gert betur í þjónustu við seinfæra foreldra líkt og lög um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991, með síðari breytingum nr. 37/2018 og lög um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir nr. 38/2018 gera ráð fyrir. Þannig sýna niðurstöður að um þriðjungur sveitarfélaga veitir seinfærum foreldrum ekki þjónustu nema mál þeirra séu unnin sem barnaverndarmál. Auk þess kom fram að meirihluti sveitarfélaga notar ekki sértækt námsefni við kennslu og þjálfun seinfærra foreldra. Niðurstöður sýna jafnframt að skortur er á þekkingu starfsmanna á gagnlegri nálgun í vinnu með seinfærum foreldrum. Barnaverndarstarfsmenn telja sig skorta sértæka fræðslu og ráðgjöf um hvernig best er að vinna með foreldrunum og þörf sé á handleiðslu og hagnýtum leiðbeiningum við vinnslu slíkra mála. Þá sýna niðurstöður að veruleg þörf sé á sértæku námsefni fyrir seinfæra foreldra til að auka foreldrafærni þeirra. The main objective of this study was to explore in what manner municipalities in Iceland provide appropriate support for parents with intellectual disabilities, in addition to gain insight into child protection employees‘ experience of the support provided by local authorities. A mixed research method was applied, both qualitatively and quantitatively. The study entailed three open interviews with child welfare employees as well as a questionnaire survey conducted via telephone with 25 ...
|