Áhugaleikfélög á Íslandi : afhverju starfar þú með leikfélagi og hvaða þættir í starfsemi þess skipta mestu máli?

Markmið þessarar rannsóknar var að komast að því afhverju fólk starfar með leikfélagi og hvaða þættir í starfi áhugaleikfélaga skipta máli. Af hverju kemur fólk saman eftir vinnu til að vinna að stóru verkefni í nokkrar vikur án þess að fá neitt í vasann fyrir það að jafnaði. Sjónum var beint að með...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Þórfríður Soffía Þórarinsdóttir 1983-
Other Authors: Háskólinn á Bifröst
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2018
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/32495
Description
Summary:Markmið þessarar rannsóknar var að komast að því afhverju fólk starfar með leikfélagi og hvaða þættir í starfi áhugaleikfélaga skipta máli. Af hverju kemur fólk saman eftir vinnu til að vinna að stóru verkefni í nokkrar vikur án þess að fá neitt í vasann fyrir það að jafnaði. Sjónum var beint að meðlimum áhugaleikfélaga sama hvaða hlutverki einstaklingurinn gegndi í sínu leikfélagi. Viðtal var tekið við þrjá einstaklinga sem buðu sig fram til að fara í viðtal útaf verkefninu og út frá þeim var gerð spurningakönnun sem send var út í lokaða hópa áhugaleikfélaga. Viðtölin fóru fram í enda febrúar og byrjun mars 2016 en spurningakönnunin var send út í október 2017. Notast var við blandaða rannsóknaraðferð og greiningu niðurstaðna. Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að þátttakendur höfðu persónulegan ávinning af leiklistinni. Viðmælendur voru almennt sammála um hvað félagslegi þátturinn var mikilvægur og hversu jákvæð áhrif leiklistin hefði á þau og aðra í kringum þau, spurningakönnunin samsvaraði sér við viðtölin. Helsta gagnrýnin sem kom fram voru streituvaldar eins og húsnæðismál, samningaviðræður við staðarhaldara eða sveitarfélög og álag á fjölskyldur á æfingatímabilum og þá sérstaklega ef fjölskyldan var ekki þátttakandi í leikfélaginu eða leiklist. Niðurstöðurnar vekja margar áhugaverðar spurningar sem vert er að skoða með áframhaldandi rannsókn sem getur vonandi aðstoðað áhugaleikfélög í framtíðinni til að sanna gildi sitt í samfélaginu. Lykilorð: Leiklist, drífandi, leikfélag, áhugi, skemmtun The aim of this research was to look into why amateur theatre groups matter. Why do people gather after work to labour on a big project for a few weeks, without payment? The focus was on members in amateur heatre no matter what role they had within the theatre. Three members volunteered to be interviewed for the project. A survey was based on their answers and reactions, and sent to closed theatre groups. The interviews took place at the end of February and the beginning of March 2016. However, the survey was ...