Hvernig geta stærri viðburðir á borð við Iceland Airwaves nýtt sér stjórnun viðskiptatengsla (CRM) til markaðssetningar?

Stjórnun viðskiptatengsla (CRM) er mikilvægur hluti af uppbyggingu viðskiptavinavildar sem og aukið samkeppnisforskot fyrirtækja. Hugmyndafræði CRM hefur verið notuð í fyrirtækjum síðan fyrir síðustu aldamót og sérstakur hugbúnaður nýttur til að safna upplýsingum um viðskiptavini með það að leiðarlj...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Anna Rún Austmar 1984-
Other Authors: Háskólinn á Bifröst
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2018
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/32475
Description
Summary:Stjórnun viðskiptatengsla (CRM) er mikilvægur hluti af uppbyggingu viðskiptavinavildar sem og aukið samkeppnisforskot fyrirtækja. Hugmyndafræði CRM hefur verið notuð í fyrirtækjum síðan fyrir síðustu aldamót og sérstakur hugbúnaður nýttur til að safna upplýsingum um viðskiptavini með það að leiðarljósi að auka viðskiptavinavirði og byggja upp arðbær viðskiptasambönd. Á meðan stór og miðlungsstór fyrirtæki eru að nýta sér hugmyndafræðina og hugbúnaði er ekki ljóst hvernig stærri viðburðir á borð við Iceland Airwaves geta nýtt sér fræðina hvort sem er til að byggja upp sambönd við gesti eða tónlistarmenn. Markmið rannsóknarinnar var að kanna hvort og hvernig skipuleggjendur Iceland Airwaves nýta sér stjórnun viðskiptatengsla til markaðssetningar. Einnig var kannað hver afstaða almennings væri til hátíðarinnar og hvort markaðssetning væri að skila sér til þeirra. Tekin voru viðtöl við skipuleggjendur hátíðarinnar síðustu 10 ár og gáfu þau viðtöl góða sýn í þeirra störf. Helstu niðurstöður voru þær að skipuleggjendur hafa lítið sem ekkert nýtt sér stjórnun viðskiptatengsla þegar kom að gestum hátíðarinnar, en nýir eigendur lýstu þó áhuga á að koma sér upp hugbúnaði til þeirra verka. Í niðurstöðum kemur einnig fram að almenningur á Íslandi virðist ekki hafa sérstakan áhuga á hátíðinni og lítið séð hana auglýsta. Þó kom í ljós að Íslendingar virðast reiðubúnir til að veita persónuupplýsingar til skipuleggjenda ef þeir fá eitthvað í staðinn. Að lokum er komið inn á ýmsar lausnir og hugmyndir hvernig megi nýta CRM við skipulag og markaðssetningu viðburða. Costumer relationship management (CRM) is an important part of building a customer base as well as increasing the competitive advantage of companies. The idea of CRM has been used in companies since before the millenial and special software is usually used to gather information about customers with the aim of increasing customer value and building profitable business relations. While large and medium-sized companies are making use of ideology and software, it is not ...