Summary: | Mikill áhugi innlendra og erlendra fjárfesta hefur sprottið upp á undanförnum misserum sem varðar nýtingar á vindorku á Íslandi. Fyrirhugaðar eru fjöldi framkvæmda sem fela í sér að reisa vindorkuver víðast hvar um landið. Búrfellslundur, Blöndulundur, Vindorkuver á Hróðnýjarstöðum í Dölum, í Garpsdal, við Rif á Snæfellsnesi og á Sólheimum í Dalasýslu eru allt verkefni sem nú eru til skoðunar. Markmið rannsóknarinnar var að rannsaka markaðslegar aðstæður sem snúa að rekstri vindorkuvers. Starfræksla vindorkuvers á Íslandi kæmi til með að auka fjölbreytileika á íslenskum raforkumarkaði sem er drifinn af vats og jarðvarmavirkjunum. Niðurstaða rannsóknarinnar bendir því til þess að í náinni framtíð komi vindorkuver til með að vera starfrækt á Íslandi. Helstu ástæður þess eru spá um aukna eftirspurn eftir raforku á Íslandi, tækniþróun í nýtingu vindorku er hröð og sífellt hagkvæmari miðað við aðra kosti, og sá stutti tími sem tekur að reisa vindorkuver.
|