Birtingarmynd og tengsl iðnaðar og sjálfbærni í námsefni grunnskóla

Samkvæmt aðalnámskrá grunnskóla frá árinu 2013 (Mennta- og menningamálaráðuneytið, 2013) er hlutverk grunnskóla að sinna almennri menntun, en slíkt felur í sér að undirbúa nemendur fyrir þátttöku í lýðræðislegu samfélagi, atvinnulífi og frekara námi. Aðalnámskrá grunnskóla tiltekur einnig að hluti a...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Vala Hrönn Isabel Pétursdóttir 1985-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2018
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/32467
Description
Summary:Samkvæmt aðalnámskrá grunnskóla frá árinu 2013 (Mennta- og menningamálaráðuneytið, 2013) er hlutverk grunnskóla að sinna almennri menntun, en slíkt felur í sér að undirbúa nemendur fyrir þátttöku í lýðræðislegu samfélagi, atvinnulífi og frekara námi. Aðalnámskrá grunnskóla tiltekur einnig að hluti af þessum undirbúningi sé að kynna nemendum fjölbreytta náms- og starfsmöguleika þar sem áhugi og hæfileikar hvers og eins fá að blómstra enda auki slíkt á jafnrétti nemenda. Með fjölbreyttri umfjöllun í gegnum skólastarfið um ólík störf landsmanna gefst tækifæri til þess að styrkja áhugasviðs- og einstaklingsmiðað nám ásamt því að hvetja nemendur til þess að kynna sér ólíka möguleika í áframhaldandi námi. Markmið rannsóknarinnar var að skoða tíðni og samhengi birtingarmynda iðnaðar og sjálfbærni í námsgögnum fyrir grunnskólanemendur. Aðferð rannsóknarinnar er textaleit í gagnagrunni sem byggður var á útgefnu kjarnaefni Menntamálastofnunnar. Valin voru 29 leitarorð sem tengdust iðnaði, atvinnulífi og sjálfbærni og var gerð talning á þeim í 393 titlum. Þar sem orð komu fyrir var samhengi skoðað og greint út frá eðli og birtingarmynd þeirra í umræðu um iðnað og sjálfbærni. Niðurstöður rannsóknarinnar voru að afar lítil umfjöllun er um iðnað og sjálfbærni í námsefninu. Til eru bækur sem fjalla um sjálfbærni og iðnað að einhverju marki en hvergi eru þessir þættir settir í samhengi við hvern annan. Einnig kom í ljós að töluverður kynjahalli er í umfjöllun um iðngreinar í námsefni grunnskólanemenda. Helst kom fram umfjöllun um mannvirkja- eða rafiðngreinar, sjávarútveg eða landbúnað, en lítið sem ekkert var fjallað um atvinnugreinar þar sem konur eru fjölmennari. Niðurstöður eru innlegg í umræðu um eflingu iðnnáms þar sem gefin er greinargóð mynd af samfélagslegu rými iðnaðar í námsgögnum grunnskólabarna og þeirri umfjöllun og kynningu sem af því hlýst.Athyglivert er að umfjöllun um sjálfbærni er lítið tengd umfjöllun um iðnað og atvinnulíf á Íslandi. Með þessari úttekt mun vonandi gefast möguleiki á því að nálgast ...