„Börnin okkar eiga tvö móðurmál, þau bara kunna ekki bæði ennþá“ : reynsla foreldra af uppbyggingu tveggja móðurmála

Tungumál og menning skiptir fólk máli, börn ekki síður en fullorðna. Á mörgum heimilum er notast við fleiri en eitt tungumál og leggja foreldrar þá oft mikla vinnu á sig til að tryggja góðan málþroska barna sinna. Markmið rannsóknarinnar var að finna svör við því hver reynsla foreldra í þvermenninga...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Sara Eik Sigurgeirsdóttir 1987-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2018
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/32463
Description
Summary:Tungumál og menning skiptir fólk máli, börn ekki síður en fullorðna. Á mörgum heimilum er notast við fleiri en eitt tungumál og leggja foreldrar þá oft mikla vinnu á sig til að tryggja góðan málþroska barna sinna. Markmið rannsóknarinnar var að finna svör við því hver reynsla foreldra í þvermenningarlegum samböndum væri af hvatningu til að styðja við málþroska beggja mögulegra móðurmála ungra barna sinna. Í rannsóknarverkefninu var unnið út frá fyrirbærafræðilegu sjónarhorni, gagna var aflað með hálf-stöðluðum paraviðtölum og þau greind með þemagreiningu. Þátttakendur rannsóknarinnar voru fjögur pör og var annar aðilinn í hverju pari íslenskur og hinn af erlendum uppruna, allir frá Evrópu. Meðan á rannsókninni stóð áttu allir þátttakendur börn á leikskólaaldri og voru búsettir í sveitarfélagi á Norðurlandi vestra þar sem fjölmenning er lítil. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að foreldrar í þvermenningarlegum samböndum vinna að uppbyggingu móðurmála eftir margvíslegum leiðum. Samkvæmt niðurstöðum höfundar finna þvermenningarleg pör einkum fyrir hvatningu frá fjölskyldum sínum til að styðja við bæði móðurmál barna sinna. Hvatning jafngildir þó ekki stuðningi og upplifa sumir hverjir sig eina á báti í móðurmálsuppbyggingunni. Lýstu allir þátttakendur þeirri sameiginlegu upplifun að það sé að lokum algjörlega undir þeim sjálfum komið að styðja við málþroska beggja mögulegra móðurmála barna sinna. Sú viðleitni að sýna uppruna allra barna í leikskólanum áhuga með því að kynna fjölbreyttan mat og menningu á ákveðnum dögum yfir skólaárið er mikils metin, en væntingar foreldra um raunverulegan stuðning við bæði móðurmál, einkum á efri skólastigum, eru að sama skapi greinilegar. Upplifun þátttakenda er sú að ávinningurinn af tvítyngi sé ætíð meiri en minni og nefna foreldrar í því samhengi til dæmis betri tengsl við fjölskyldu og uppruna sem og aukna vitsmuna- og efnahagslega möguleika í framtíðinni. Er það von höfundar að rannsókn þessi geti orðið grundvöllur að endurskoðuðu, bættu og virkara samstarfi milli foreldra og ...