Einkenni árangursríkra frumkvöðla

Viðfangsefni þessarar ritgerðar var að skoða árangursþætti íslenskra frumkvöðla. Tilgangurinn var að kanna hvaða persónueinkenni og þættir það eru sem gera það að verkum að frumkvöðlar nái árangri og einnig hvort íslenskir frumkvöðlar sem ná árangri séu eins aðrir frumkvöðlar. Markmiðið er að geta s...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Stefán Claessen 1988-
Other Authors: Háskólinn á Bifröst
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2018
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/32455
Description
Summary:Viðfangsefni þessarar ritgerðar var að skoða árangursþætti íslenskra frumkvöðla. Tilgangurinn var að kanna hvaða persónueinkenni og þættir það eru sem gera það að verkum að frumkvöðlar nái árangri og einnig hvort íslenskir frumkvöðlar sem ná árangri séu eins aðrir frumkvöðlar. Markmiðið er að geta svarað rannsóknarspurningunni um hver væru einkenni árangursríkra frumkvöðla á Íslandi og sanna eða afsanna þá rannsóknartilgátu að ekki væri munur á íslenskum frumkvöðlum og öðrum hvað þetta varðar. Til að svara þessu var gerð rannsókn á meðal íslenskra fjárfestingastjóra sem fjárfesta í fyrirtækjum íslenskra frumkvöðla og hugmyndum þeirra auk þess að hafa starfað lengi í nýsköpunar- og frumkvöðlaumhverfi. Rannsóknin byggði á eigindlegri rannsóknaraðferð þar sem tekin voru opin djúpviðtöl við fjóra viðmælendur. Viðmælendur voru spurðir út í viðhorf sín og reynslu af þeim þáttum sem þeir töldu gera það að verkum að frumkvöðlar næðu árangri. Í ritgerðinni er einnig fjallað um aðferðafræðina sem notuð var, kosti hennar og galla ásamt því að einnig er fjallað á fræðilegan hátt um frumkvöðulinn, persónu-einkenni hans, árangursþætti og líkan kynnt til sögunnar sem notast var við í greiningunni. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru að einkenni árangursríkra frumkvöðla á Íslandi eru: 1. Ástríða hans og helgun 2. Þrautseigja og dugnaður 3. Mannblendni, opinn persónuleiki, samskipti og persónutöfrar 4. Heppni Einnig að rannsóknartilgátan um að íslenskir frumkvöðlar sem ná árangri séu eins og aðrir árangursríkir frumkvöðlar í heiminum reyndist sönn og þeir árangursþættir sem skipta sköpum hvað árangur þeirra varðar eru þeir sömu. The subject matter of this paper was to examine the success factors of entrepreneurs in Iceland. The purpose was to look at what personality traits and factors make entrepreneurs successful. The objective was to be able to answer the question; „what are the personality traits of successful of entrepreneurs in Iceland? Also to accept or reject the research hypothesis that there is no difference ...