Sjálfsmynd unglinga og skólinn : hvernig er unnið með sjálfsmynd unglinga í tengslum við kynfræðslu í skólum

Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Lokaritgerð þessi er unnin til B.Ed.-prófs við Háskólann á Akureyri, vorið 2005. Í ritgerðinni er gert grein fyrir helstu kenningum fræðimanna um sjálfsmyndina og hugtökum sem tengjast henni. Við skoðuðum námsefni sem til er og hvað aðal...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Elín Júlíana Sveinsdóttir, Helga Guðrún Hinriksdóttir
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2005
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/324
Description
Summary:Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Lokaritgerð þessi er unnin til B.Ed.-prófs við Háskólann á Akureyri, vorið 2005. Í ritgerðinni er gert grein fyrir helstu kenningum fræðimanna um sjálfsmyndina og hugtökum sem tengjast henni. Við skoðuðum námsefni sem til er og hvað aðalnámskrá grunnskóla segir um sjálfsmyndina. Að því loknu tókum við viðtöl við átta kennara í fjórum skólum á Akureyri og tvo skólahjúkrunarfræðinga. Breytt kynhegðun unglinga hefur verið mikið í umræðunni undanfarin ár. Teljum við þessa breyttu hegðun tengjast sjálfsmynd unglinga. Skólinn spilar stórt hlutverk í lífi unglinga og því er tilgangur þessarar ritgerðar að leyta svara við rannsóknarspurningu okkar; Hvernig er unnið með sjálfsmynd unglinga í tengslum við kynfræðslu í skólum? Niðurstöður rannsóknar okkar gefa til kynna að það fer eftir sérhverjum kennara hversu mikið er fjallað um sjálfsmyndina við nemendur. Mikið stendur um sjálfsmyndina í aðalnámskrá grunnskóla en námsgögn virðast ekki leggja jafn mikla áherslu á hana. Við samanburð skólanna virðist ekki vera samráð á milli þeirra hvað þetta varðar. Viðtöl voru tekin við skólahjúkrunarfræðinga til að athuga þátt þeirra í kennslu á sjálfsmynd og kynfræðslu í skólum. Það er von okkar að ritgerð þessi verði til þess að vekja kennara og aðra til umhugsunar um mikilvægi sjálfsmyndarinnar því sterk sjálfsmynd á unglingsárum er góður grunnur fyrir framtíðina.