Samspil sjávar og basaltglers í Surtsey og áhrif þess á efnasamsetningu vatnsins í jarðhitakerfi eyjunnar

Jarðhitakerfið í Surtsey hefur mikið verið rannsakað og boruð var hola SE01 árið 1979 og hafa gögn úr þeirri holu bæði borkjarni og vatnssýni varpað heilmiklu ljósi á myndun móbergs. Borað var í eyjuna aftur sumarið 2017 þá voru þrjár holur boraðar, tvær lóðrétt niður og ein skáhallandi. Í þessari r...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Þorgerður María Þorbjarnardóttir 1995-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2019
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/32373
Description
Summary:Jarðhitakerfið í Surtsey hefur mikið verið rannsakað og boruð var hola SE01 árið 1979 og hafa gögn úr þeirri holu bæði borkjarni og vatnssýni varpað heilmiklu ljósi á myndun móbergs. Borað var í eyjuna aftur sumarið 2017 þá voru þrjár holur boraðar, tvær lóðrétt niður og ein skáhallandi. Í þessari ritgerð verður farið yfir efnafræði móbergsmyndunar og jarðhitakerfi í Surtsey lýst. Farið verður yfir þær steindir sem fundist hafa í fyrri rannsóknum. Rýnt er síðan í efnagreiningu á sýnum af jarðsjó sem tekin voru í skáhallandi holunni sem ber nafnið SE03. Gerð voru þrjú módel við 50°C, 100°C og 150°C fyrir efnafræði jarðsjávar á svæðinu og þróun þess með mismunandi hlutfalli basaltglers og sjávar. Gögnin eru síðan borin saman við módelið og áætlað hvert hlutfall basaltglers og sjávar er og hversu mikil áhrif uppleysing basaltglers í jarðhitakerfinu hefur á efnasamsetningu jarðhitavökvans í kerfinu. Þessi ritgerð er mitt framlag til rannsóknarverkefnisins er varðar borunina 2017.