Nýgengi bráðra meiðsla í hnefaleikum á Íslandi: Framskyggn hóparannsókn með spurningalista

Markmið þessarar rannsóknar var að kanna meiðslatíðni, tegund, staðsetningu og áhættuþætti bráðra meiðsla á æfingu og í bardaga hjá áhuga- og atvinnuiðkendum í hnefaleikum á Íslandi. Slík rannsókn hefur ekki verið gerð hérlendis og lítið er til af erlendum rannsóknum á þessu efni. Framkyggn hóparann...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Harpa Söring Ragnarsdóttir 1990-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2019
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/32354
Description
Summary:Markmið þessarar rannsóknar var að kanna meiðslatíðni, tegund, staðsetningu og áhættuþætti bráðra meiðsla á æfingu og í bardaga hjá áhuga- og atvinnuiðkendum í hnefaleikum á Íslandi. Slík rannsókn hefur ekki verið gerð hérlendis og lítið er til af erlendum rannsóknum á þessu efni. Framkyggn hóparannsókn með 9 mánaða eftirfylgni var framkvæmd árið 2017-2018. Sjötíu og fjórir hnefaleikaiðkendur af báðum kynjum, 18 ára og eldri úr öllum 7 hnefaleikafélögum Íslands tóku þátt. Í upphafi rannsóknar fylltu þátttakendur út spurningalista um fyrri meiðsli tengd hnefaleikaiðkun og voru metnir með SCAT3 heilaáverkamælitæki. Upplýsingum um ástundun iðkenda á æfingum og öll meiðsli sem þátttakendur hlutu sem orsökuðu fjarveru frá æfingu eða keppni var aflað með smáskilaboðum og símtölum á tveggja vikna fresti. Rannsakandi mætti á öll hnefaleikamót sem haldin voru á Íslandi og skráði niður útkomu bardaga sem þátttakendur kepptu í. Niðurstöður voru þær helstar að 48 meiðsli hlutust yfir rannsóknartímabilið, 40 á æfingum og 8 í bardaga. Flest meiðsli voru á höfuð, háls eða andlit (41,7%) en þar á eftir voru meiðsli á efri útlimi (33,3%). Heilahristingur var algengasta tegund meiðsla (29,2%) en á eftir fylgdi vöðvatognun (18,4%). Heildar meiðslatíðni mældist 79,4 meiðsli á 100 iðkendur. Enginn af þeim hugsanlegu áhættuþáttum sem skoðaðir voru mældist marktækur en marktækur munur fannst á meiðslatíðni milli hnefaleikafélaga (p=0,015). Í ljóst kom að einungis 3 af 14 iðkendum sem hlutu heilaáverka leituðu til heilbrigðisstarfsmanns í kjölfar áverka. Meiðslatíðni bráðra meiðsla í hnefaleikum á Íslandi er lægri en það sem fundist hefur í rannsóknum erlendis. Þrátt fyrir það mælist heilahristingur algengari hér en í öðrum rannsóknum. Frekari rannsókna er þörf á því hve alvarleg tilfelli heilahristings hljótast hjá þessum hópi íþróttafólks og mikilvægt er að koma upp forvarnaráætlunum svo draga megi úr líkum á skaða vegna þessa áverka. Á sama hátt þarf að koma á góðu samstarfi milli heilbrigðisstarfsfólks og þessa íþróttahóps og þarf ...