Summary: | Tilgangur: Tilgangur þessarar rannsóknar er að skoða notendaupplifun einstaklinga á vefnum Heilsuveru og fá þannig dýpri skilning á raunverulegri upplifun notenda. Framkvæmd: Rannsóknin er byggð á viðtali við tvo starfsmenn hugbúnaðardeildar Origo, notendaprófunum og spurningalista í formi vefkönnunar. Í viðtals hlutanum var notast við hálf opið viðtal með spurningalista en þannig skapast rými fyrir rannsakendur til að aðlaga spurningarnar að svörum viðmælenda. Í notendaprófana hlutanum var notast við staðlaðar spurningar tengdar bakrunni, prófunina sjálfa og eftir það nokkrar spurningar í hálf skipulögðu viðtali. Í spurningakönnunar hlutanum var sendur út spurningalisti sem innihélt 28 spurningar, 26 þeirra voru lokaðar og tvær þeirra voru opnar. Spurningalistinn var sendur út í gegnum samfélagsmiðilinn Facebook en ásamt því að vera sendur á alla nemendur Háskólans í Reykjavík. Niðurstöður: Helstu niðurstöður rannsóknarinnar sýna að notendaupplifun á vefnum Veru er heilt á litið mjög jákvæð. En eftir að hafa farið yfir niðurstöður notendaprófana og spurningalista er það nokkuð ljóst að notendur eru langflestir ánægðir með Veru og vilja sjá hana halda áfram að þróast og stækka. Rannsakendur telja þó að með auknum upplýsingum til notenda, með betri kynningu á vefnum og fyrir hvað hann stendur muni upplifun notenda aukast til muna. Purpose: The purpose of this study is to examine the user experience on the Health website and gain a deeper understanding of the actual experience of users. Method: The study is based on an interview with two employees of the software department of Origo, user tests and questionnaires in the form of a survey. In the interview part, a semi-open interview was conducted with a questionnaire, creating a space for researchers to customize the questions accordingly for the respondents. In the user test section, we used standard questions related to the background of the participants, the user test itself and then some questions in a semi-organized interview in the end. Last but not least ...
|