Þú veist okay við erum búin að velja þessa staði og hvað, hvað nú?: Aðkoma heimamanna að áfangastaðaáætlun Norðurlands

Stefnumótun innan ferðaþjónustunnar hefur orðið algeng meðal stjórnvalda í heiminum á undanförnum árum. Á Íslandi hafa stjórnvöld fetað sig áfram í stefnumótun í ferðaþjónustu síðan árið 1972. Árið 2017 var svo undirritaður samningur milli Ferðamálastofu og markaðsstofa landshlutanna um gerð áfangas...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Ragnhildur Dagbjört Pétursdóttir 1994-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2019
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/32284
Description
Summary:Stefnumótun innan ferðaþjónustunnar hefur orðið algeng meðal stjórnvalda í heiminum á undanförnum árum. Á Íslandi hafa stjórnvöld fetað sig áfram í stefnumótun í ferðaþjónustu síðan árið 1972. Árið 2017 var svo undirritaður samningur milli Ferðamálastofu og markaðsstofa landshlutanna um gerð áfangastaðaáætlana sem eru hluti af stefnumótun ferðaþjónustunnar. Ferðamálastofa gerði það að skilyrði við gerð samningsins að forgangsverkefnalisti yrði búinn til fyrir áætlanirnar. Í ritgerð þessari verður sjónum beint að svæði 3 á Norðurlandi en landshlutanum er skipt í fjögur svæði. Svæði 3 er Mývatn, Húsavík og Þingeyjarsveit. Markmið þessarar ritgerðar er að fá innsýn um hvernig staðið var að gerð áfangastaðaáætlunar Norðurlands og þá einkum vali á forgangsverkum á svæði 3 og þátttöku heimamanna í því ferli. Þá verður leitast við að varpa ljósi á viðhorf heimamanna til áfangastaðaráætlunarinnar og þeirra forgangsverkefna sem urðu fyrir valinu. Til þess að ná framangreindu markmiði var framkvæmd eigindleg rannsókn þar sem tekin voru viðtöl við fimm aðila sem allir tengdust áfangastaðaráætluninni með mismunandi hætti. Rannsóknarspurningarnar voru tvær en sú fyrri var Hvernig var þátttöku heimamanna háttað við gerð áfangastaðaáætlunar Norðurlands á svæði 3? og sú síðari var Hvernig endurspeglast sýn heimamanna á svæði 3 í áfangastaðaáætlun Norðurlands? Helstu niðurstöður þessarar ritgerðar voru að aðkoma heimamanna var ólík hvað varðar val á þeim verkefnum sem komu til greina sem forgangsverkefni og val á milli þeirra en heimamenn höfðu beina aðkomu að vali á milli síðargreindu verkefnanna. Þá mátti greina almenna ánægju meðal heimamanna um þau forgangsverkefni sem urðu fyrir valinu en tvö af þremur forgangsverkefnum hafa verið baráttumál heimamanna á svæðinu um langt skeið. Efnisatriði: Ferðaþjónusta, Áfangastaðaáætlanir, Heimamenn, Norðurland, Mývatn, Húsavík, Þingeyjarsveit Strategic planning has been gaining popularity the tourism industry in recent years. Authorities in Iceland have been developing strategic ...