Krýsuvík - á móti sólu Mat á svæðinu og tillaga að uppbyggingu ferðamannastaða

Á síðustu árum hafa orðið gífurlegar breytingar á fjölda ferðamanna á Íslandi en ferðamenn hafa farið úr 70 þúsund í 2,2 milljónir 2017 á aðeins 30 árum. Spár gera enn ráð fyrir aukningu ferðamanna næstu ár en ekki eins mikilli og verið hefur. Krýsuvík hefur ekki farið varhluta af auknum ferðamannas...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Helga Stefánsdóttir 1967-
Other Authors: Landbúnaðarháskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2018
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/31998
Description
Summary:Á síðustu árum hafa orðið gífurlegar breytingar á fjölda ferðamanna á Íslandi en ferðamenn hafa farið úr 70 þúsund í 2,2 milljónir 2017 á aðeins 30 árum. Spár gera enn ráð fyrir aukningu ferðamanna næstu ár en ekki eins mikilli og verið hefur. Krýsuvík hefur ekki farið varhluta af auknum ferðamannastraumi en umferð bíla við Seltún í Krýsuvík hefur tvöfaldast á 5 árum. Mikilvægt er fyrir sveitarfélagið Hafnarfjörð að gera sér betur grein fyrir þeim tækifærum sem liggja í Krýsuvík með það að sjónarmiði að fara í uppbyggingu á völdum stöðum og hlúa að svæðinu. Marka þarf stefnu uppbyggingar, hvaða svæði á að byggja upp þannig að þau taki við fjölgun ferðamanna og hvaða svæði á að leggja minni áherslu á og jafnvel vernda. Skoðun og greining leiddi í ljós að aðal ferðamannastraumurinn í Krýsuvík liggur að háhitasvæðinu í Seltúni. Frekari greining á svæðinu öllu var unnin út frá fyrirliggjandi talningum, spurningakönnunum og viðtölum við hagsmunaaðila. Jafnframt var svæðið skoðað með svo kallaðri SVÓT aðferð, þar sem svæðið var skoðað með tilliti til styrkleika, veikleika, tækifæra og ógnana. Niðurstöður greiningarinnar eru að óspillt náttúra, jarðfræðin, fámennið, menningarminjar og háhitasvæðin er það sem ferðamenn sækjast eftir í Krýsuvík og fjölbreytileiki svæðisins þykir einstakur. Með hliðsjón af niðurstöðunum er lagt til að ráðist verði í frekari uppbyggingu við Seltún, Grænavatn, Kleifarvatn, Krýsuvíkurberg og Krýsuvíkurhverfið vegna náttúrunnar og aðgengis. Settar eru fram tillögur að skiplagi við Krýsuvíkurberg og Grænavatn en endanlegt deiliskipulag þarf að vinna í samvinnu við hagsmunaaðila. There has been enormous increase in the last few years in the number of tourists visiting Iceland. Over a period of 30 years the numbers have grown from 70 thousand to 2.2 million in 2017. Forecasts are still expecting increase in the coming years, however not as rapid as recently. Krýsuvík has been affected by increased flow of tourists, and the vehicle traffic at Seltrún in Krýsuvík has doubled over a period of 5 ...