Kvíði, depurð og minnistap: Sjálfsmat eldra fólks

Markmið rannsóknarinnar var að skoða með OASR sjálfsmatslistum dreifingu á skorum og tíðni kvíða- og depurðar einkenna og einkenna minnistaps hjá einstaklingum 60 ára og eldri á Íslandi. Einnig var markmiðið að athuga hvort dreifing þessara einkenna hér á landi sé hærri eða lægri en viðmiðunarhóps A...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Sandra Jónsdóttir 1992-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2018
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/31996
Description
Summary:Markmið rannsóknarinnar var að skoða með OASR sjálfsmatslistum dreifingu á skorum og tíðni kvíða- og depurðar einkenna og einkenna minnistaps hjá einstaklingum 60 ára og eldri á Íslandi. Einnig var markmiðið að athuga hvort dreifing þessara einkenna hér á landi sé hærri eða lægri en viðmiðunarhóps ASEBA í Bandaríkjunum. Rannsóknin byggist á megindlegri aðferð þar sem unnið var með fyrirliggjandi gögn úr rannsókn Halldórs S. Guðmundssonar og fleiri. Í þeirri rannsókn var 800 manna tilviljanaúrtak tekið úr þjóðskrá hjá aldurshópnum 60 ára og eldri. Þátttakendur voru beðnir um að svara ASEBA matslistum fyrir einstaklinga 60 ára og eldri, annars vega OASR sjálfsmatslista og hins vegar OABCL matslista fyrir aðstandendur. Í rannsókn þessari fór fram greining á gögnum 354 þátttakenda og voru konur 54,5% þátttakenda en 45,5% þeirra karlar. Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að almennt voru meðaltölin hærri hjá aldurshópnum 76 ára og eldri miðað við 60-75 ára. Einnig voru meðaltölin almennt hærri hjá konum en körlum í einkennaflokkum ASEBA og DSM. Hlutfall þátttakenda með jaðar-/klínískan vanda í einkennaflokkum ASEBA mældist í heildina 9,6% í flokknum kvíði/depurð og 7,3% í flokknum minnistap. Í einkennaflokkum samkvæmt DSM mældist heildarhlutfallið 7,3% í einkennaflokknum þunglyndi, 8,2% kvíða og 5,9% á einkennum heilabilunar. Jafnframt sýndu niðurstöðurnar að ekki var tölfræðilega marktækur munur á milli íslensku rannsóknarinnar og viðmiðunarhóps ASEBA í Bandaríkjunum. Þó mátti sjá að meðaltölin bæði á einkennaflokkum ASEBA og DSM voru almennt lægri í íslensku rannsókninni miðað við viðmiðunarhóp ASEBA. The aims of this research study were to examine, with the OASR self-report, the distribution of mean scores and frequency of anxiety and depression symptoms and symptoms of memory loss, in individuals 60 years and older in Iceland. Additionally the aims of this research were to evaluate if the prevelance of these symptoms were higher or lower in Iceland as compared to the same age group in the United States. ...