„Mér finnst betra að fara út úr bekknum“. Upplifun og reynsla barna með námserfiðleika af stuðning í grunnskóla.

Á Íslandi starfa grunnskólar eftir stefnunni um skóla án aðgreiningar. Markmið stefnunnar er að bera virðingu fyrir fjölbreytileika barna og að útrýma mismunun innan skólanna. Stefnan hefur verið við lýði í tíu ár á Íslandi en nýlegar rannsóknir hafa sýnt fram á að innleiðing stefnunnar sé stutt á v...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Lilja Gísladóttir 1983-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2018
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/31989
Description
Summary:Á Íslandi starfa grunnskólar eftir stefnunni um skóla án aðgreiningar. Markmið stefnunnar er að bera virðingu fyrir fjölbreytileika barna og að útrýma mismunun innan skólanna. Stefnan hefur verið við lýði í tíu ár á Íslandi en nýlegar rannsóknir hafa sýnt fram á að innleiðing stefnunnar sé stutt á veg komin. Rannsókn þessi fjallar um upplifun og reynslu barna með námserfiðleika af stuðningi í grunnskólum á höfðuborgarsvæðinu. Markmið rannsóknarinnar er að skoða hvernig börn túlka veruleika sinn í grunnskóla sem nemendur með námserfiðleika og hvernig þau upplifa þann stuðning sem þau fá. Tilgangur rannsóknarinnar er að öðlast innsýn í aðstæður nemenda með námserfiðleika og veruleika þeirra í skólaumhverfinu. Leitað var svara við eftirfarandi meginspurningu: Hver er reynsla nemenda með námserfiðleika af skóla án aðgreiningar? Í rannsókninni var notast við eigindlega aðferðafræði þar sem tekin voru rýnihópaviðtöl við börn á aldrinum tólf til fjórtán ára. Helstu niðurstöður eru þær að reynsla og upplifun nemenda með námserfiðleika er sú að þeir hafi þörf fyrir meiri vinnufrið innan skólans og að fagfólk taki sér tíma til að aðstoða þau. Einnig sýna niðurstöður að börn með námserfiðleika vilja finna fyrir meiri samheldni á meðal skólafélaga og óska þess að upplifa sig meira sem hluta af hópnum. Þess er vænst að niðurstöður rannsóknarinnar verði kveikja að frekari rannsóknum á málefninu og þær vísbendingar sem koma fram geti verið leiðarljós fyrir fagfólk innan grunnskólanna í vinnu þeirra með nemendum með námserfiðleika og við skipulagningu stuðnings innan grunnskólanna. Lykilorð: stuðningur, nemendur, námserfiðleikar, grunnskóli, útilokun, tilheyra In Iceland, elementary schools operate according to the policy of inclusive education. The aim of the policy is to respect the diversity of children and to eliminate discrimination within schools. The policy has been in place for ten years in Iceland, but recent studies have shown that the implementation of the policy has not been very successful. The following study ...