„Það komu alveg fullt af krökkum“ : mat á gæðum í félagsmiðstöðvastarfi

Félagsmiðstöðvastarf á Íslandi hefur breyst talsvert frá því að Tómstundaheimilið við Lindargötu tók til starfa árið 1957. Hlutverk félagsmiðstöðva, áherslur og innihald starfsins hefur þróast frá því að vera öryggisventill gegn óæskilegri hegðun yfir í að vera stór þáttur í uppeldi og menntun ungli...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Ívar Orri Aronsson 1987-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2018
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/31939
Description
Summary:Félagsmiðstöðvastarf á Íslandi hefur breyst talsvert frá því að Tómstundaheimilið við Lindargötu tók til starfa árið 1957. Hlutverk félagsmiðstöðva, áherslur og innihald starfsins hefur þróast frá því að vera öryggisventill gegn óæskilegri hegðun yfir í að vera stór þáttur í uppeldi og menntun unglinga og skilar af sér einstaklingum sem taka virkan þátt í samfélaginu. Erfitt getur reynst að koma auga á ávinning starfsins og raunveruleg gæði þess. Í þessu verkefni er farið yfir upphaf og þróun félagsmiðstöðvastarfs í Reykjavík og þau tæki skoðuð sem notuð eru til þess að meta starfið. Leitast er við að svara spurningum hvort að félagsmiðstöðvastarf í Reykjavík hafi þróast samhliða breytingum í samfélaginu annars vegar og hins vegar hvort að mat á gæðum í félagsmiðstöðvastarfi hafi þróast samhliða þróun starfsins. Að lokum er síðan velt upp þeim möguleikum sem eru fyrir hendi varðandi mat á gæðum í félagsmiðstöðvastarfi. Um er að ræða heimildarritgerð þar sem heimildum er aflað úr fræðilegum skrifum um félagsmiðstöðvastarf. Helstu niðurstöður verkefnisins eru þær að mat á gæðum í félagsmiðstöðvastarfi hefur þróast mikið samhliða þróun starfsins. Helstu ástæður fyrir því eru breytar áherslur og hlutverk félagsmiðstöðva ásamt aukinnar fagþekkingar í starfinu. Innleiðing innra og ytra mats í félagsmiðstöðvastarfi hefur farið hægt af stað og er ennþá að þróast. Þess vegna liggja miklir möguleikar í innra og ytra mati á félagsmiðstöðvastarfi. Til þess að fá sem bestar niðurstöður þarf að samtvinna gæðamatið við megindlegt mat á félagsmiðstöðvastarfi eins og þátttökumælingum og niðurstöðum frá Rannsókn & Greining. Framtíðarskrefið í innra og ytra mati er síðan að virkja unglinga sem sækja starfið enn frekar í matinu og horfa til skoðana þeirra er varða starfið.