Greining hráefnis ísfisktogara með tilliti til vinnslueiginleika

Markmið þessa verkefnis er að greina hráefni ísfisktogara sem koma með ofurkælt hráefni í land annarsvegar og hinsvegar ísfisktogara sem koma með hefðbundið hráefni í land geymt á ís og greina hvaða áhrif þessar tvær aðferðir hafa á vinnslueiginleika hráefnis, greina hvort aldur hráefnis hefur áhrif...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Hlynur Guðnason 1991-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2018
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/31862
Description
Summary:Markmið þessa verkefnis er að greina hráefni ísfisktogara sem koma með ofurkælt hráefni í land annarsvegar og hinsvegar ísfisktogara sem koma með hefðbundið hráefni í land geymt á ís og greina hvaða áhrif þessar tvær aðferðir hafa á vinnslueiginleika hráefnis, greina hvort aldur hráefnis hefur áhrif á flakanýtingu og gallatíðni og hvernig hámarka megi verðmæti þess afla sem kemur á land. Verkefnið er tvískipt, í fyrri hluta verkefnisins var framkvæmd rannsókn á áhrifum kælingar þorsks á flakanýtingu og afurðaskiptingu í vinnslu HB Granda á Vopnafirði. Í öðrum hluta er síðan framkvæmd tölfræðileg greining á gögnum frá vinnslu HB Granda í Reykjavík til þess að svara því um hvernig hámarka megi nýtingu og gæði og lágmarka galla þess afla sem kemur á land. Helstu niðurstöður verkefnisins eru þær að gerð kælingar virðist ekki hafa marktæk áhrif á flakanýtingu karfa og ufsa þar sem hún er að mestu háð þyngd og holdafari fisks. Sömuleiðis virðist gerð kælingar ekki hafa marktæk áhrif á gallahlutfall en gallahlutfall virðist einkum vera háð þyngd hráefnis og ástandi véla. Marktækur munur er á hlutfalli karfaflaka með rauða stirtlu milli skipa sem og einnig flakanýtingu ufsa eftir aldri hráefnis þegar hann er unnin og má því hámarka nýtingu með því að vinna fiskinn á þeim aldri ef sá möguleiki sé fyrir hendi.