Fjárfesting og fullveldi: Hverjir leysa úr gerðarmálum erlendra fjárfesta gegn Íslandi og hvernig?

Viðfangsefni þessarar ritgerðar er samspil hins mikilvæga og kvika sviðs alþjóðlegra fjárfestingagerðardóma við fjölþjóðleg stórverkefni hér á landi, einkum þegar ákvæði samninga eða sérleyfissamningar kveða á um lögsögu íslenskra dómstóla og beitingu íslenskra laga. Helstu rannsóknarspurningarnar e...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Ágústa H. Lyons Flosadóttir 1958-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2018
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/31827
Description
Summary:Viðfangsefni þessarar ritgerðar er samspil hins mikilvæga og kvika sviðs alþjóðlegra fjárfestingagerðardóma við fjölþjóðleg stórverkefni hér á landi, einkum þegar ákvæði samninga eða sérleyfissamningar kveða á um lögsögu íslenskra dómstóla og beitingu íslenskra laga. Helstu rannsóknarspurningarnar eru: Í fyrsta lagi hvort íslenskum stjórnvöldum sé óhætt að treysta á samningsákvæði um íslenska lögsögu og gildandi lög, kjósi erlendur fjárfestir fremur að leggja ágreining fyrir alþjóðlegan fjárfestingagerðardóm. Þeirri spurningu verður svarað að mestu neitandi, einkum með því að skoða hver hefði orðið líkleg niðurstaða um lögsögu ef félag í kínverskri eigu hefði leitað til slíks gerðardóms vegna sérleyfissamnings frá 2014 um leit og vinnslu olíu á Drekasvæðinu. Í öðru lagi er spurt hverju það kunni að skipta hvort íslenskir dómstólar eða alþjóðlegir fjárfestingagerðardómar hafi lögsögu. Fjallað er stuttlega um ólíka nálgun þeirra, m.a. um mörk almennrar lagasetningar og eignarnáms, neyðarréttarsjónarmið og aðkomu almennings í umhverfismálum. Eftir almenna umfjöllun um kosti, ókosti, yfirstandandi þróun og framtíðarhorfur núverandi verndarkerfis fjárfestinga er í þriðja lagi rætt hvort staða Íslands sem lítils hagkerfis með stórar fjölþjóðlegar fjárfestingar á teikniborðinu feli í sér sérstakar áskoranir eða hættur og ræddar mögulegar ráðstafanir íslenskra stjórnvalda til að tryggja betur reglusetningarsvigrúm og fjárhagslegt öryggi ríkisins. Investment and Sovereignty: Icelandic Implications of Investor-State Arbitration This thesis considers the implications of the important and rapidly evolving field of international investor-state arbitration concerning foreign investment in Iceland, in particular when contractual or concession agreement provisions specify the jurisdiction of Icelandic courts and the application of Icelandic law. Its chief research questions are: First, whether Icelandic authorities can safely count on contractual provisions for Icelandic jurisdiction and applicable law, should a foreign ...