Atvinnuþróun á Suðurnesjum í kjölfar brotthvarfs varnarliðsins og hrunsins

Ritgerð þessi fjallar um atvinnuþróun á Suðurnesjum frá því að varnarliðið yfirgaf Ísland og efnahagsáfallið dundi yfir þjóðina árið 2008. Suðurnesin fundu einna mest fyrir þessum áföllum og atvinnuástand var með versta móti. Tilgangur rannsóknarinnar er að skoða hvaða hlutverki Þróunarfélag Keflaví...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Baldur Þórir Guðmundsson 1964-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2018
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/31800
Description
Summary:Ritgerð þessi fjallar um atvinnuþróun á Suðurnesjum frá því að varnarliðið yfirgaf Ísland og efnahagsáfallið dundi yfir þjóðina árið 2008. Suðurnesin fundu einna mest fyrir þessum áföllum og atvinnuástand var með versta móti. Tilgangur rannsóknarinnar er að skoða hvaða hlutverki Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar, Kadeco, og Atvinnuþróunarfélagið Hekla gegndu í atvinnuuppbyggingu á Suðurnesjum og meta árangurinn af starfsemi félaganna. Einnig verður rýnt í aðrar opinberar aðgerðir til atvinnuuppbyggingar sem ráðist var í. Fjögur viðtöl voru tekin við fólk sem kemur að viðfangsefninu frá ýmsum hliðum. Tveir viðmælandanna voru framkvæmdastjórar félaganna á tímabilinu sem um ræðir og hinir tveir eru sveitarstjórnarmenn sem þekkja málaflokkinn frá ýmsum hliðum. Einnig var rýnt í hagtölur og opinberar skýrslur. Helstu niðurstöður eru að hinar hefðbundnu aðferðir við atvinnuþróun á landsbyggðinni hafa ekki skilað miklum fjölda starfa þó mörg smærri samfélagsverkefni hafi notið góðs af vaxtarsamningum og uppbyggingarsjóðum. Sjálfbær rekstur sprettur sjaldnast upp úr þeim jarðvegi. Kadeco hefur náð athyglisverðum árangri bæði í sölu þeirra fasteigna sem varnarliðið skyldi eftir og einnig í að skapa jarðveg fyrir áhugaverð fyrirtæki sem hafa haslað sér völl á Ásbrúarsvæðinu. Full ástæða er til að draga lærdóm af því hvernig tekist hefur til með Kadeco og byggja á þeirri reynslu til framtíðar í þróun atvinnulífsins. This thesis discusses economic development in the Southern Peninsula from the time the Iceland Defence Force left Iceland in 2006 and the economic collapse hit the nation in 2008, until today. The Southern peninsula was hard hit by these crises resulting in a poor employment situation. The purpose of the research is to look into the roles Kadeco, the Keflavik Airport Development Corporation, and Hekla, the Economic Development Corporation, played in resurrecting the economy of the Southern Peninsula and evaluate the results of their work. Other public operations and interventions from this period will also be ...