Ástæða endurkomu nemenda í frumgreinanám í Háskólann í Reykjavík

Markmið þessarar rannsóknar var að kanna hver ástæða nemenda sem taka sér hlé frá námi er fyrir endurkomu í nám á frumgreinasviði hjá Háskólanum í Reykjavík. Skoðað var hvað varð til þess að þátttakendur ákváðu að snúa aftur til náms, hvort trú á eigin færni hafði áhrif á endurkomu til náms og hvort...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Edda Sif Sævarsdóttir 1976-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2018
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/31787
Description
Summary:Markmið þessarar rannsóknar var að kanna hver ástæða nemenda sem taka sér hlé frá námi er fyrir endurkomu í nám á frumgreinasviði hjá Háskólanum í Reykjavík. Skoðað var hvað varð til þess að þátttakendur ákváðu að snúa aftur til náms, hvort trú á eigin færni hafði áhrif á endurkomu til náms og hvort þátttakendur hefðu markmið og skuldbindingu til námsins. Einnig var fyrri upplifun og gengi nemenda í námi skoðað. Rannsóknin byggir á spurningalista sem lagður var fyrir 283 nemendur í frumgreinanámi Háskólans í Reykjavík, annars vegar skólaárið 2015-­‐2016 og hins vegar skólaárið 2017-­‐2018. Niðurstöður benda til þess að nemendur sem taka sér hlé frá námi snúi aftur til náms til að öðlast fleiri atvinnutækifæri. Nemendur höfðu almennt sett sér markmið með náminu, voru mjög ákveðnir að ljúka frumgreinanáminu og stefna á háskólanám eftir fumgreinanámið. Endurkomu nemendur höfðu almennt trú á eigin færni í frumgreinanáminu og töldu sig vel undirbúna námslega undir námið. Í heildina má segja að nemendur sem tóku sér hlé frá námi og snéru svo aftur til náms á frumgreinasviði Háskólans í Reykjavík mátu það svo að með háskólamenntun öðluðust þeir fleiri atvinnutækifæri.