Leiðsögumaðurinn sem túlkur í breskum ferðasögubókmenntum um Ísland á 19. öld

Undanfarna áratugi hafa stórbættar samgöngur og ný tækni auðveldað fólki að ferðast heimshorna á milli. Þegar horft er til árdaga ferðamennsku, er augljóst að mikið var fyrir ferðalögum haft fyrr á tímum, með gríðarlegum undirbúningi og kostnaði þeirra sem höfðu ráð á. Í tilfelli breskra ferðamanna...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Tinna Þorsteinsdóttir 1974-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Master Thesis
Language:Icelandic
Published: 2018
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/31716
Description
Summary:Undanfarna áratugi hafa stórbættar samgöngur og ný tækni auðveldað fólki að ferðast heimshorna á milli. Þegar horft er til árdaga ferðamennsku, er augljóst að mikið var fyrir ferðalögum haft fyrr á tímum, með gríðarlegum undirbúningi og kostnaði þeirra sem höfðu ráð á. Í tilfelli breskra ferðamanna er ferðuðust til Íslands á 19. öld var í langflestum tilfellum um unga aðalsmenn að ræða og þurftu þeir á ferðum sínum um Ísland á leiðsögumönnum að halda, sem þekktu aðstæður í úfnu landinu. Þessir leiðsögumenn voru einnig túlkar þeirra og komu því að samskiptum við heimamenn hvarvetna. Í þessari ritgerð er fjallað um hlutverk íslenskra leiðsögumanna sem túlka eins og því er lýst í breskum ferðabókmenntum 19. aldar um Ísland. Hér er farið í frumskoðun á úrvali breskra ferðabóka um Ísland. Hlutverk leiðsögumannanna sem túlka er skoðað, tungumálakunnátta þeirra greind og rýnt í hvaða dóm megi leggja á þá gerð túlkunar sem fram fór, en lítið hefur verið rannsakað hvaða vald leiðsögumenn raunverulega höfðu sem túlkar. Stuðst er við kenningar fræðimannsins Michaels Cronin um ósýnileika þýðandans eða þýðingar í ferðabókmenntum og skoðað verður hvort túlkurinn sé einnig ósýnilegur í þessum flokki bókmennta um Ísland. Kenning þessarar ritgerðar er að svo sé ekki og dregin ályktun um það hvernig túlkunin hafði áhrif á samskiptin og þá sýn sem ferðalangar höfðu á Ísland og Íslendinga, sem einnig endurspeglaði þeirra eigin sjálfsmynd og tíðaranda þess tíma. During recent decades, traveling between countries has become significantly easier through improvements in the travel industry and new technology. It is evident that tourism, in it’s heyday, required great efforts with preparations and significant costs undertaken by the few travellers who could afford such endeavours. British travellers who travelled to Iceland in the 19th century were mostly young noblemen, who required local guides during their travels with ample experience and knowledge of Iceland’s rough travel routes. These guides were also the travellers’ ...