Jafnrétti í leikskóla : hafa börn í fámennum leikskólum í dreifbýli á Íslandi jöfn tækifæri til menntunar og uppeldis, óháð kyni?

Verkefnið er lokað Eftirfarandi ritgerð er lokaverkefni til 180 eininga B.Ed.-prófs við kennaraskor Hug- og félagsvísindadeildar Háskólans á Akureyri. Efni ritgerðarinnar er kyngervi í leikskóla og er rannsóknaspurningin eftirfarandi: Fá börn í fámennum leikskólum í dreifbýli á Íslandi jöfn tækifæri...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Birna Davíðsdóttir
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2009
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/3168
Description
Summary:Verkefnið er lokað Eftirfarandi ritgerð er lokaverkefni til 180 eininga B.Ed.-prófs við kennaraskor Hug- og félagsvísindadeildar Háskólans á Akureyri. Efni ritgerðarinnar er kyngervi í leikskóla og er rannsóknaspurningin eftirfarandi: Fá börn í fámennum leikskólum í dreifbýli á Íslandi jöfn tækifæri til menntunar og uppeldis, óháð kyngervi? Í öðrum kafla ritgerðarinnar er fræðileg umræða um kyngervi, uppeldi og jafnrétti. Minnst er á hlutverk menntastofnanna í jafnréttisfræðslu. Skoðaðar eru rannsóknir, kenningar og fræðigreinar sem tengjast kynjajafnrétti og fagþróun kennara. Þriðji kafli ritgerðarinnar fjallar um rannsóknina sjálfa, spurningakönnunina og viðtöl sem höfundur framkvæmdi. Undirbúningur og framkvæmd verkefnisins er útskýrður. Í rannsókninni er notuð blönduð aðferðafræði, megindlegra og eigindlegra aðferða. Í fjórða kafla fer fram greining gagnanna. Spurningakönnun var send til sjö fámennra leikskóla í dreifbýli og viðhorf starfsmanna til kyngervis rannsakað. Einnig er athugað hvernig viðhorf þeirra speglast í daglegu starfi leikskólans, framkomu þeirra við börnin og hugmyndir þeirra til kynjafræði í námi kennara. Viðtöl voru einnig tekin við tvo leikskólastjórnendur til stuðnings skoðunarkönnunar og til dýpkunar efnisins. Í fimmta kafla eru niðurstöður ræddar og þær bornar saman við niðurstöður annarra rannsókna og fræðilega umræðu. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru að leikskólakennarar hafa áhuga á að starfa með jafnréttismál í leikskólum, þó svo að fæstir þeirra muni eftir jafnréttisumræðu í sínu námi. Þeir finna ekki fyrir áberandi kynjamisrétti í leikskólastarfinu en nefna mikilvægi þess að börn fái að njóta hæfileika sinna á eigin forsendum. The following research paper completes the requirements for a 180 credit B.Ed. degree from the department of education at the University of Iceland. The main focus of the research paper is gender and gender equality in preschool education. The primary research question is as follows: Do children in selected preschools in rural Iceland enjoy ...