Sálfélagslegur ávinningur af hundahaldi fyrir börn með hegðunar- og tilfinningavanda

Markmið þessarar rannsóknar er að leita eftir sýn foreldra á sálfélagslegan ávinning hundahalds fyrir börn með hegðunar- og tilfinningavanda. Hundurinn hefur fylgt manninum lengi. Í rannsóknum sem gerðar hafa verið á hundahaldi hefur komið fram að hundurinn gegni fjölbreyttu hlutverki í lífi manna o...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Ágústa Dúa Oddsdóttir 1992-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2018
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/31641
Description
Summary:Markmið þessarar rannsóknar er að leita eftir sýn foreldra á sálfélagslegan ávinning hundahalds fyrir börn með hegðunar- og tilfinningavanda. Hundurinn hefur fylgt manninum lengi. Í rannsóknum sem gerðar hafa verið á hundahaldi hefur komið fram að hundurinn gegni fjölbreyttu hlutverki í lífi manna og að ávinningur þess geti birst með margvíslegum hætti. Hlutverk hundahalds hefur lítið sem ekkert verið rannsakað hér á landi og byggist nýmæli rannsóknarinnar á því að fá innsýn sex foreldra sem eiga börn með hegðunar- og tilfinningavanda til hlutverk hunds í lífi barna þeirra. Tekin voru sex hálfopin djúpviðtöl við foreldra barna með hegðunar- og tilfinningavanda. Þar var leitast við að fá fram djúpa sýn þeirra á líðan og hegðun barna þeirra áður en hundur kom á heimilið og eftir að þau eignuðust hund. Við þemagreiningu gagnanna komu fram þrjár meginniðurstöður. Í fyrsta lagi var það reynsla allra foreldranna að það að eiga og annast hund hafi bætt líðan barnanna og jákvæða hegðun bæði í leik og starfi. Í öðru lagi upplifðu foreldrarnir að hundahaldið efli ábyrgðartilfinningu barnanna. Í þriðja lagi kom fram hjá foreldrunum að börnin upplifa hundana sem besta vin sinn og það að annast hann hafi hafi styrkt þau félagslega. Niðurstöðurnar gefa vísbendingar um að hundahald geti verið góð leið til að hlúa að vellíðan og félagsfærni barna sem glíma við hegðunar- og tilfinningavanda. The aim of this qualitative study is to gain a deep insight into parents‘ views on the psychosocial benefits, for children with behavioral and emotional problems, of owning and taking care of a dog. The dog has been regarded as a man‘s best friend for a long time. Research on dog ownership has revealed that the dog serves a diverse role in the life of humans and that the benefits of this relationship can manifest in various ways. This research topic has not received much attention in Iceland. The novelty of this research is to get a view and understanding of six Icelandic parents of children with behavioral and emotional problems on the ...