Grenndarkennsla á Þórshöfn : hvernig er hægt með grenndarkennslu að vekja þá hugsun hjá börnum að læra að meta náttúruna, umhverfi sitt og þá sögu sem það hefur að geyma?

Ritgerð þessi er lokaverkefni til B.Ed-prófs við Kennaradeild Háskólans á Akureyri á vormisseri 2009. Umfjöllunarefnið er grenndarkennsla á Norðausturlandi. Sýnt er fram á hvernig má flétta þá vinnu saman við ýmis þemaverkefni í grunnskóla á svæðinu. Ritgerðin skiptist í tvo meginhluta. Fyrri hlutin...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Árni Davíð Haraldsson
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2009
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/3162
Description
Summary:Ritgerð þessi er lokaverkefni til B.Ed-prófs við Kennaradeild Háskólans á Akureyri á vormisseri 2009. Umfjöllunarefnið er grenndarkennsla á Norðausturlandi. Sýnt er fram á hvernig má flétta þá vinnu saman við ýmis þemaverkefni í grunnskóla á svæðinu. Ritgerðin skiptist í tvo meginhluta. Fyrri hlutinn er fræðilegur, og fjallar um grenndarkennslu og þá skynjun, sem reynt er að örva hjá nemendum; vitund sem er í samhengi við viðfangsefnin hverju sinni. Upplifun og skynjun nemandans skiptir miklu máli og er lykillinn að vel heppnaðri grenndarkennslu. Í grenndarkennslu, er megináhersla lögð á umhverfið og samfélagið í heild, því eins og vitað er, þá skiptir, bakgrunnur og saga alla máli, til að tengjast samfélaginu betur órofaböndum. Í þessum hluta, er einnig fjallað um kennsluaðferðir/hugmyndir tveggja virtra heimspekinga, þeirra Jean-Jacques Rousseau og John Dewey. Þeir lögðu báðir áherslu á mikilvægi þess að koma nemendum í beina snertingu við námsefnið til að auka sem mest nálgun og skilning nemenda á viðfangsefnunum. Í lok fyrri hluta er síðan farið í það hvernig megi tengja markmið Aðalnámskrár grunnskóla við grenndarkennslu. Í síðari hluta ritgerðarinnar er byrjað á að kynna Grunnskóla Þórshafnar lítillega fyrir lesendum, en það er skólinn sem einna helst ynni með verkefnin sem tekin eru fyrir. Því næst koma frásagnir af Langanesi frá löngu liðinni tíð. Þær eru fléttaðar inn í þemavinnu grunnskólans sem einnig tekur mið af markmiðum Aðalnámskrár, grenndarkennslu og hugmyndum áðurnefndra heimspekinga. Í lokin eru kynntar niðurstöður þar sem kaflarnir tengjast allir á einn eða annan hátt og dregin er fram í dagsljósið heildarniðurstaða verksins. Summary This thesis is the final assignment for a Bachelor degree (B.Ed.) at the University of Akureyri in the spring of 2008. The main topics are related to specific areas of Iceland, particularly the North-East part of the country, and the task of teaching pupils awareness of their surroundings. The thesis will demonstrate how such work can be connected to certain ...