Lærum af þeim bestu: hagnýt viðmið fyrir lyfjafræðilega umsjá

Lyfjafræðileg umsjá er einstaklingsmiðið þjónusta fyrir sjúklinga sem veitt er af lyfjafræðingum í nánu samstarfi við lækna innan almennu heilbrigðisþjónustunnar. Lyfjafræðileg umsjá hefur ekki verið vel skilgreind hér á landi né hefur verið gerð áætlun um innleiðingu á þjónustunni. Heilbrigðisyfirv...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Þórunn Kristín Guðmundsdóttir 1969-
Other Authors: Háskólinn í Reykjavík
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2018
Subjects:
MPM
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/31360
Description
Summary:Lyfjafræðileg umsjá er einstaklingsmiðið þjónusta fyrir sjúklinga sem veitt er af lyfjafræðingum í nánu samstarfi við lækna innan almennu heilbrigðisþjónustunnar. Lyfjafræðileg umsjá hefur ekki verið vel skilgreind hér á landi né hefur verið gerð áætlun um innleiðingu á þjónustunni. Heilbrigðisyfirvöld hafa sýnt málefninu áhuga og óskað eftir gögnum frá lyfjafræðingum, ásamt stefnu og aðgerðaráætlunar fyrir lyfjafræðilega umsjá á Íslandi. Markmið þessarar greinar er að rannsaka lykilþætti árangursríkrar þjónustu lyfjafræðilegrar umsjár sem veitt er í þeim tilgangi að bæta gæði og árangur lyfjameðferðar og lækka kostnað í heilbrigðiskerfinu. Hagnýt viðmið fyrir bestu starfsvenjur er notuð sem rannsóknaraðferð og niðurstöður settar fram sem tillögur byggðar á upplýsingum og gögnum. Niðurstöður gefa til kynna að það séu tækifæri til umbóta, en enginn lyfjafræðingur starfar á heilsugæslunni við að veita lyfjafræðilega umsjá. Nota má vitneskju um hagnýt viðmið sem fengin voru frá Fairview Pharmacy Services í Minnesota í Bandaríkjunum til stefnu og áætlunargerðar fyrir yfirvöld. Það er til mikils að vinna og með þessum hætti er hægt að læra af þeim bestu, undirbúa farveginn í átt að framtíðarsýninni til samþættingar á lyfjafræðilegri umsjá sem nýja þjónustu innan heilbrigðiskerfisins á Íslandi til ávinnings fyrir einstaklinga og þjóðfélagið. Lykilorð: lyfjafræðileg umsjá, hagnýt viðmið, bestu starfsvenjur, heilbrigðisþjónusta Pharmaceutical care practice is a direct patient care service provided by pharmacists in cooperation with physicians in primary care. Pharmaceutical care is not well defined in Iceland nor has implementation and integration of the services been planned. Health authorities have shown interest in the service and requested supportive documentation with a strategy and an action plan from pharmacists. The aim of this paper is benchmarking best practice by exploring key components of a highly successful pharmaceutical care practice where the main goal is to improve patient outcomes and reduce ...