Eitt hjarta - eitt líf : hver er ávinningur einstaklinga með kransæðasjúkdóm af eftirfylgd hjúkrunarfræðinga á göngudeild hjartasjúklinga, lyflækningadeildar Sjúkrahússins á Akureyri?

Verkefnið er lokað Rannsóknarspurning: Hver er ávinningur einstaklinga með kransæðasjúkdóm af eftirfylgd hjúkrunarfræðinga á göngudeild hjartasjúklinga, lyflækningadeildar Sjúkrahússins á Akureyri? Tilgangur: Að meta hvernig kransæðasjúklingum göngudeildarinnar gekk að aðlagast nauðsynlegum lífsstíl...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Eygló Brynja Björnsdóttir 1975-, Guðlaug Heiðdís Sveinsdóttir, Sigríður Guðmundsdóttir, Þóra Bryndís Hjaltadóttir
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2009
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/3133
Description
Summary:Verkefnið er lokað Rannsóknarspurning: Hver er ávinningur einstaklinga með kransæðasjúkdóm af eftirfylgd hjúkrunarfræðinga á göngudeild hjartasjúklinga, lyflækningadeildar Sjúkrahússins á Akureyri? Tilgangur: Að meta hvernig kransæðasjúklingum göngudeildarinnar gekk að aðlagast nauðsynlegum lífsstílsbreytingum og hver upplifun þeirra af eftirfylgdinni var. Bakgrunnur: Einstaklingar með kransæðasjúkdóma þurfa oft að gera miklar breytingar á lífsstíl sínum og getur markviss eftirfylgd hjálpað þeim við það. Þátttakendur: Þátttakendur voru átta karlmenn sem höfðu greinst með kransæðasjúkdóm á síðustu þremur til tólf mánuðum. Meðalaldur var 49 ár. Allir nema einn höfðu þekkta áhættu-þætti fyrir veikindin. Úrtakið var hentugleikaúrtak valið af hjúkrunarfræðing göngudeildar-innar. Rannsóknaraðferð: Eigindleg rannsókn, þar sem tekin voru hálfstöðluð viðtöl. Tekið var eitt viðtal við hvern þátttakanda þar sem þeir lýstu reynslu sinni af eftirfylgdinni. Viðtölin voru hljóðrituð, rituð orðrétt upp og greind í þemu í leit að sameiginlegum niðurstöðum. Einnig var líkamsþyngd, mittismál og blóðþrýstingur mældur í upphafi eftirfylgdartímabils og á rannsóknartímabilinu. Helstu niðurstöður: Ánægja var með eftirfylgdina. Þátttakendum fannst fræðslan nýtast vel og að engu væri ofaukið en fannst skorta fræðslu um kynlíf og lyf. Þeim fannst sá stuðningur og aðhald sem þeir fengu í eftirfylgdinni vera lífsnauðsynlegur og höfðu allir áhyggjur af því hvernig þeim gengi að fóta sig eftir að eftirfylgdinni lyki. Meðferðarsamband við hjúkrunar-fræðinga fannst þeim gott en töldu flestir að nauðsynlegt væri að aðstandendur fengju líka stuðning og fræðslu. Allir höfðu aukið við sig hreyfingu og bætt mataræði að eigin sögn. Aðeins einn karlmaður reykti enn eftir áfallið. Allir nema einn voru komnir undir háþrýstings-mörk og búnir að ná æskilegum blóðfitugildum. Þrátt fyrir allar þessar breytingar höfðu þátttakendur ekki náð meðferðarmarkmiðum varðandi líkamsþyngd eða mittismál. Aðeins tveir karlmannanna tjáðu andlega vanlíðan í kjölfar ...