Er löggilding starfsheitisins verkefnastjóri raunhæfur möguleiki á Íslandi?

Umræðan um víðtæka notkun orðsins verkefnastjóri hefur verið tíð innan samfélags verkefnastjóra. Tilgangur verkefnisins var að skoða stöðu löggildinga starfsheita almennt, skoða þróun á löggildingu starfsheitisins verkefnastjóri í Bretlandi og setja fram tillögur um næstu skref fyrir verkefnastjóra...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Eva Kristinsdóttir 1984-
Other Authors: Háskólinn í Reykjavík
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2018
Subjects:
MPM
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/31305
Description
Summary:Umræðan um víðtæka notkun orðsins verkefnastjóri hefur verið tíð innan samfélags verkefnastjóra. Tilgangur verkefnisins var að skoða stöðu löggildinga starfsheita almennt, skoða þróun á löggildingu starfsheitisins verkefnastjóri í Bretlandi og setja fram tillögur um næstu skref fyrir verkefnastjóra á Íslandi. Rannsóknaraðferð var eigindleg og viðtöl voru valin sem gagnasöfnunaraðferð þar sem val viðmælenda var úrtakagerð eftir hentugleika þar sem þátttakendur eru auðveldlega aðgengilegir þeim sem rannsakar. Alls voru níu viðtöl tekin. Bretar opnuðu fyrir umsóknir um löggildingar starfsheitisins faglegur verkefnastjóri í maí 2018 þar sem hægt er að velja milli nokkurra umsóknarleiða. Við rannsóknina kom fram að Bretar vilja gera verkefnastjórnun að faggrein og auka fagmennsku sem mun auka líkur á vel heppnuðum verkefnum. Helstu niðurstöður sýna að kröfur til löggildingar starfsstétta á Íslandi eru mismunandi og samkvæmt Stjórnarskránni þurfa almenningshagsmunir að vera í húfi til að löggilding sé veitt. Rík hefð er hér á landi fyrir löggildingu starfsheita en að baki liggja mismunandi lög sem eru mörg hver ansi gömul. Í Evrópu, þar með talið á Íslandi, er stefnan að finna skapandi lausnir til að auka fagmennsku fremur en að löggilda starfsheiti. Erfitt gæti því reynst að sanna að almenningshagsmunir séu í húfi í tilfelli verkefnastjóra en næstu skref gætu til dæmis verið að kalla saman starfshóp, boða til þings þar sem ýmsir hagsmunaaðilar kæmu að borðinu og ræddu hvaða leiðir séu í boði hvað þetta varðar og skoða hvað aðrar starfsstéttir og aðrar þjóðir hafa gert. The wide use of the word project manager has been in the discussion within the community of project managers. The purpose of this paper was to examine the situation of chartered job titles in Iceland, examine the development of the Chartered Project Professional in the UK and make proposals of nexts steps for project managers in Iceland. Qualitative research method was chosen and compilation of data was done by interviews. The sampling was chosen by ...