Vægi álitsgerða matsmanna og skýrslna sérfræðinga við sönnun í sakamálum. Rannsókn á dómum Hæstaréttar í málum sem varða kynferðisbrot gegn börnum á tímabilinu 1. janúar 2008 til 1. janúar 2018

Ritgerð þessi fjallar um álitsgerðir matsmanna og skýrslur sérfræðinga og leitast er við að svara því hvaða vægi slík gögn hafa við sönnun í sakamálum. Í þeim tilgangi eru dómar Hæstaréttar í málum sem varða kynferðisbrot gegn börnum skoðaðir á tíu ára tímabili, frá 1. janúar 2008 til 1. janúar 2018...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Jóhanna Guðjónsdóttir 1991-
Other Authors: Háskólinn í Reykjavík
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2018
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/31292
Description
Summary:Ritgerð þessi fjallar um álitsgerðir matsmanna og skýrslur sérfræðinga og leitast er við að svara því hvaða vægi slík gögn hafa við sönnun í sakamálum. Í þeim tilgangi eru dómar Hæstaréttar í málum sem varða kynferðisbrot gegn börnum skoðaðir á tíu ára tímabili, frá 1. janúar 2008 til 1. janúar 2018. Í upphafi ritgerðarinnar verður gerð almenn grein fyrir sönnun og rannsókn sakamála, skýrslum sérfræðinga og álitsgerðum matsmanna auk umfjöllunar um sönnun í kynferðisbrotum. Meginþungi ritgerðarinnar er svo dómarannsóknin þar sem skoðað er hvaða vægi gögn sérfræðinga um líðan brotaþola í kjölfar brots hafa á niðurstöðu í málum varðandi kynferðisbrot gegn börnum. Tilgangur rannsóknarinnar er að skoða dómana með hliðsjón af því hvort þessara sérfræðigagna um líðan brotaþola hafi verið aflað og hvort vísað sé til þeirra varðandi sönnun í niðurstöðu dómanna. Rannsóknin leiddi í ljós að gögn sérfræðinga um líðan brotaþola í kjölfar brots hafa ríkt vægi við sönnun í sakamálum. Þessi gögn geta stutt við trúverðugan framburð brotaþola með þeim hætti að það nægi til sakfellingar. Þegar þessi gögn eru til staðar er vísað til þeirra í rúmlega helmingi tilfella þegar ákærði neitar sök en aðeins í um tæplega þriðjungi mála þegar ákærði játar sök. Margvíslegar ástæður geta verið fyrir því að ekki er vísað til þessara gagna varðandi sönnun í niðurstöðu mála, svo sem hvaða önnur sönnunargögn eru til staðar í máli, hversu oft sérfræðingur hittir brotaþolann og hversu mörgum áföllum brotaþoli hefur orðið fyrir. This thesis addresses the importance of advisory opinions and expert reports and seeks to answer how much weight if any, such evidence has in criminal cases. For that purpose, the judgments of the Supreme Court of Iceland in cases regarding sexual abuse towards children are examined during the period from 1 January 2008 to 1 January 2018. First there is a general discussion of proof and investigation in criminal cases. There is also a discussion about expert evidence and about proof in sexual abuse cases. The main emphasis ...