Skipulagt íþróttastarf fyrir eldri borgara í íþróttahúsum landsins

Verkefninu er skipt í tvo hluta, annars vegar fræðilegan bakgrunn og hins vegar handbók um skipulagt íþróttastarf fyrir eldri borgara í íþróttahúsum á Íslandi. Fræðilegi bakgrunnurinn fjallar um fjölgun einstaklinga í aldurshópnum 60 ára og eldri og framtíðarspá um fjölgun í þessum aldurshópi á næst...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Eva Katrín Friðgeirsdóttir 1994-, Fríða Karen Gunnarsdóttir 1994-
Other Authors: Háskólinn í Reykjavík
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2018
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/31239
Description
Summary:Verkefninu er skipt í tvo hluta, annars vegar fræðilegan bakgrunn og hins vegar handbók um skipulagt íþróttastarf fyrir eldri borgara í íþróttahúsum á Íslandi. Fræðilegi bakgrunnurinn fjallar um fjölgun einstaklinga í aldurshópnum 60 ára og eldri og framtíðarspá um fjölgun í þessum aldurshópi á næstu áratugum. Í verkefninu verður fjallað um þær breytingar sem verða í lífi einstaklinga þegar aldurinn færist yfir og mikilvægi hreyfingar og félagslegra tengsla svo að öldrunin megi verða farsæl. Meðfylgjandi handbók fjallar um þróunarverkefnið Vítamín í Valsheimilinu sem er nýtt verkefni sem hófst í september árið 2017. Fjallar handbókin um uppsetningu og framkvæmd verkefnisins ásamt viðtölum við þátttakendur og samstarfsfólk, með von um að koma þessu mikilvæga málefni betur til skila. Bókin er hugsuð sem leiðarljós fyrir þann hóp fólks sem hefur áhuga á heilsueflingu fyrir eldra fólk. Markmið með verkefninu og handbókinni er að fleiri hverfi og íþróttafélög í Reykjavík taki upp sambærilegt verkefni, sem skilar góðum ávinningi til eldri einstaklinga og samfélagsins í heild.