Verkfærakistan : leiðin að persónunni Vigdísi í leikritinu Aðfaranótt eftir Kristján Þórð Hrafnsson

Í þessari lokagreinargerð fjalla ég um mitt persónulega sköpunarferli í útskriftarverkefni leikarabrautar Listaháskóla Íslands 2018, Aðfaranótt eftir Kristján Þórð Hrafnson í leikstjórn Unu Þorleifsdóttur. Ég fjalla um persónusköpun og þær leiktúlkunaraðferðir sem nýttust mér best í ferlinu, þar ber...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Eygló Hilmarsdóttir 1992-
Other Authors: Listaháskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2018
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/31169
Description
Summary:Í þessari lokagreinargerð fjalla ég um mitt persónulega sköpunarferli í útskriftarverkefni leikarabrautar Listaháskóla Íslands 2018, Aðfaranótt eftir Kristján Þórð Hrafnson í leikstjórn Unu Þorleifsdóttur. Ég fjalla um persónusköpun og þær leiktúlkunaraðferðir sem nýttust mér best í ferlinu, þar ber helst að nefna kerfi Stanislavskis og Michaels Chekhovs. Ég geri grein fyrir mikilvægi greiningarvinnunnar, sem er undirstöðuatriði í kerfi Stanislavskis, að finna undirtextann og bogann í ferðalagi persónunnar Vigdísar í gegnum verkið Aðfaranótt. Þá fjalla ég um líkömnun persónunnar í gegnum persónusköpunaraðferðir Michaels Chekhovs, að aðgreina mig frá persónunni, að finna það sem ég á sameiginlegt með henni og það sem ég á ekki sameiginlegt með henni. Einnig fjalla ég um ímyndaða líkamann (e. imaginary body) og ímyndaða miðju (e. imaginary center). Ég fjalla um ferðalag persónunnar og leitina að blæbrigðum í persónu sem ég átti erfitt með að samsama með og mikilvægi þess að finna til samsömunar með persónu sem hefur virkni illmennisins (eða „tíkarinnar“) og skapa þannig dínamíska og trúverðuga persónu. Ég fjalla jafnframt um þá lærdóma sem ég dró af æfingarferlinu sjálfu og mikilvægi textavinnu. Að lokum geri ég grein fyrir sýningaferlinu, hvernig það var að mæta áhorfendum og hvernig ég undirbjó mig fyrir sýningu sem krefst mikillar athygli og líkamlegs úthalds. Helstu heimildir eru úr bókunum To the Actor eftir Michael Chekhov og Approaches to Acting: Past and present eftir Daniel Meyer-Dinkgräfe. In this essay I write about my personal creative process in rehersing the play Aðfaranótt by Kristján Þórður Hrafnsson directed by Una Þorleifsdóttir, the graduation project from the Actors B.A. course of The Iceland Achademy of the Arts. I write about characterization and the methods I used in the process; Stanislavski’s system and Michael Chekhov’s methods of characterisation. I write about the first step in Stanislavskis System, the importance of analizing the play, finding the subtext of the play and the function ...