Akureyrarmódelið : þverfagleg teymisvinna, þjónustan á einni hendi og á forsendum notenda

Tilgangur þessarar rannsóknar var tvíþættur. Í fyrsta lagi að kanna hvað felst í hugtakinu „Akureyrarmódelið“ að mati fagaðila. Í öðru lagi hverjir eru helstu ávinningar af Akureyrarmódelinu. Stuðst var við kanadísku hugmyndafræðina um Eflingu iðju og kanadíska iðjulíkanið (CMOP). Samkvæmt CMOP hefu...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Guðjón Benediktsson, Sigurður Hólm Gunnarsson
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2009
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/3116
Description
Summary:Tilgangur þessarar rannsóknar var tvíþættur. Í fyrsta lagi að kanna hvað felst í hugtakinu „Akureyrarmódelið“ að mati fagaðila. Í öðru lagi hverjir eru helstu ávinningar af Akureyrarmódelinu. Stuðst var við kanadísku hugmyndafræðina um Eflingu iðju og kanadíska iðjulíkanið (CMOP). Samkvæmt CMOP hefur uppbygging stjórnsýslu áhrif á réttindi notenda og þá þjónustu og þau tækifæri sem þeir hafa. Rannsókn þessi var unnin út frá eigindlegri aðferðarfræði en hún á vel við þegar skoða á mál sem lítið hafa verið rannsökuð áður. Hægt er að öðlast dýpri skilning á viðfangsefninu með því að fá ítarlegar upplýsingar frá viðmælendum. Þátttakendur í rannsókninni voru sex talsins, þrjár konur og þrír karlmenn. Allt voru þetta fagaðilar sem tekið hafa þátt í að móta félagsþjónustuna á Akureyri. Þátttakendur voru valdir með snjóboltaúrtaki þangað til mettun var náð. Viðtöl fóru fram á vinnustöðum eða í heimahúsum. Notast var við opnar spurningar og var hvert viðtal einstakt. Viðtölin voru tekin upp og skrifuð niður og upptökum eytt í kjölfarið. Báðir rannsakendur lásu viðtölin yfir og kóðuðu þau opið. Út úr því komu þrjú þemu: Þverfagleg teymisvinna, að þjónustan sé veitt á forsendum notandans og mikilvægi þess að hafa þjónustu við fatlaða á einni hendi. Niðurstöður sýndu að þátttakendur telja að „Akureyrarmódelið“ einkennist af því að notendur geta sótt sína þjónustu á einn stað og kerfið sé sniðið að notandanum. Inn í þetta spilast samstarf ólíkra fagstétta sem vinna að sama markmiði. Þátttakendur upplifðu að notendur væru almennt ánægðir með þetta fyrirkomulag á þjónustunni.