Ofurhetjurnar : byrjendalæsi og nemendur með íslensku sem annað tungumál

Rannsókn þessi er starfendarannsókn (e. Action research) en sú rannsóknaraðferð hefur notið vaxandi athygli á undanförnum árum. Þátttakendur í þessari rannsókn voru auk rannsakanda nemendur í 3ja bekk tveggja skóla í tveimur landshlutum á Íslandi, samtals 41 nemandi. Rannsóknin fór fram á tímabilinu...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Jóhanna S R Ragnarsdóttir 1985-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2018
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/31139
Description
Summary:Rannsókn þessi er starfendarannsókn (e. Action research) en sú rannsóknaraðferð hefur notið vaxandi athygli á undanförnum árum. Þátttakendur í þessari rannsókn voru auk rannsakanda nemendur í 3ja bekk tveggja skóla í tveimur landshlutum á Íslandi, samtals 41 nemandi. Rannsóknin fór fram á tímabilinu janúar til desember 2017. Meginviðfangsefni rannsóknarinnar var að kanna hvað ég gæti gert til að bæta kennsluhætti mína með tilliti til nemenda með íslensku sem annað tungumál, ásamt því að skoða kennsluaðferðina Byrjendalæsi og hvernig aðferðir innan hennar hentuðu nemendum með íslensku sem annað tungumál. Þar sem hlutverk starfendarannsókna er að rannsaka eigið starf skoðaði ég hvernig ég gæti notað Byrjendalæsi til að auka þátttöku nemenda með íslensku sem annað tungumál í verkefnum bekkjarins. Helstu niðurstöður voru þær að með því að ræða um ólík móðurmál nemenda innan bekkjarsins tókst mér að svipta hulunni af bakgrunni þeirra. Nemendur völdu sér í auknum mæli bækur á eigin móðurmáli, til að lesa í yndislestrarstundum eða jafnvel upphátt fyrir samnemendur. Ég fór að hlusta á nemendur í stað þess að heyra aðeins í þeim og áttaði mig á mikilvægi þess að rödd nemenda heyrist og hafi raunverulegt vægi. Ég varð sátt við þær leiðir sem ég fann til að virkja umræddan nemendahóp frekar í námi og áttaði mig á því að nemendur geta mun meira en talið er, þeir vilja krefjandi verkefni en einnig þyrstir þá í að læra ný orð. Undir lok rannsóknartímabilsins var ég komin með ákveðið jafnvægi þar sem ég náði að tryggja nám allra nemenda innan veggja kennslustofunnar óháð móðurmáli þeirra . This study is an Action Research which is a research method that has gained increased attention in recent years. In Action Research, the investigator's role is to examine and investigate a specific subject or to be the subject of the research itself. Participants in my study were students in the 3rd grade of two schools in two different parts of Iceland, in a total of 41 students. The study took place from January to December of 2017. The ...