Teymiskennsla : böl eða blessun? : sýn og reynsla kennara, foreldra og nemenda af teymiskennslu í einum grunnskóla

Verkefnið er lokað til 01.06.2019. Undanfarin ár hefur ákveðin þróun átt sér stað í grunnskólum á Íslandi þar sem lögð er áhersla á góð samskipti og samvinnu kennara og hafa sumir skólar innleitt teymiskennslu til að auka gæði náms og kennslu. Í þessu verkefni er gerð grein fyrir hugmyndum fræðimann...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Hulda Björk Snæbjarnardóttir 1989-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2018
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/31138
Description
Summary:Verkefnið er lokað til 01.06.2019. Undanfarin ár hefur ákveðin þróun átt sér stað í grunnskólum á Íslandi þar sem lögð er áhersla á góð samskipti og samvinnu kennara og hafa sumir skólar innleitt teymiskennslu til að auka gæði náms og kennslu. Í þessu verkefni er gerð grein fyrir hugmyndum fræðimanna og hugmyndafræði faglegs lærdómssamfélags og útfærslu teymiskennslu. Verkefnið byggir á rannsókn sem hefur það að markmiði að varpa ljósi á og reyna að skilja hvernig kennarar, foreldrar og nemendur sjá teymiskennslu fyrir sér í faglegu lærdómssamfélagi. Rannsóknin er eigindleg og byggir fyrst og fremst á þremur rýnihópaviðtölum við starfandi kennarateymi, foreldra og nemendur sem hafa reynslu af teymiskennslu. Ásamt viðtölum voru gerðar tvær vettvangsathuganir í kennslustundum hjá þátttakendum. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar gefa til kynna að viðhorf þessara þriggja hópa sé almennt jákvætt þegar kemur að teymiskennslu og útfærslu hennar. Samhljómur er á milli hópanna um tækifæri og áskoranir teymiskennslunnar þar sem mikilvægi samvinnu, samskipta og skipulag teyma eru áberandi. Allir þátttakendur voru sammála um að kostir teymiskennslu væru fleiri en gallar hennar og að hún gæfi aukinn sveigjanleika og tækifæri þegar kæmi að þróun náms og kennslu, sem og starfsþróun kennara. Niðurstöður leiða einnig í ljós mikilvægi félagastuðnings innan teyma þar sem stuðningurinn getur hvatt kennara til frekari starfsþróunar og komið í veg fyrir kulnun þeirra í starfi. Niðurstöðurnar geta gefið kennurum, stjórnendum og öðrum sem málið varðar gagnlegar upplýsingar um mikilvæga þætti í tengslum við teymiskennslu og faglegt lærdómssamfélag. Over the past years significant development has taken place regarding elementary school education in Iceland. Emphasis has been placed on good communication and teacher collaboration in schools, and some schools have implemented collaborative teaching to improve the quality of learning and teaching. This work outlines scholars’ ideas on the set-up of professional learning communities and ...