Glöggt er gests augað : aðgengi að heilsugæslustöðvum í sveitarfélaginu Norðurþingi

Verkefnið er lokað til júlí 2009 Tilgangur rannsóknarverkefnisins var að kanna efnislegt aðgengi að heilsugæslustöðvum í sveitarfélaginu Norðurþingi. Heilsugæslustöðvarnar voru þrjár talsins, staðsettar á Húsavík, Kópaskeri og Raufarhöfn. Notuð var blönduð raðbundin rannsóknaraðferð og rannsóknarsni...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Arnþrúður Eik Helgadóttir, Eyrún Björk Pétursdóttir, Ragnheiður Ragnarsdóttir
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2009
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/3111
Description
Summary:Verkefnið er lokað til júlí 2009 Tilgangur rannsóknarverkefnisins var að kanna efnislegt aðgengi að heilsugæslustöðvum í sveitarfélaginu Norðurþingi. Heilsugæslustöðvarnar voru þrjár talsins, staðsettar á Húsavík, Kópaskeri og Raufarhöfn. Notuð var blönduð raðbundin rannsóknaraðferð og rannsóknarsniðið var tilviksathugun. Annars vegar var upplýsinga aflað með megindlegum athugunum samkvæmt úttektarlyklinum Aðgengi fatlaðra og þær niðurstöður bornar saman við byggingarreglugerð og staðla þessa málaflokks. Hins vegar voru gerðar eigindlegar úttektir þar sem tveir þátttakendur voru með í för. Annar þátttakandinn var sjónskertur og með skerta hreyfigetu sökum aldurs en hinn þátttakandinn var notandi hjólastóls. Gerðar voru þátttökuathuganir og hálfbundin viðtöl tekin í lok þeirra. Niðurstöður sýndu fram á gott aðgengi að mörgu leyti að heilsugæslustöðvunum en ýmislegt mátti þó betur fara. Þær hindranir sem komu fram í megindlegu niðurstöðunum voru til dæmis skortur á bílastæðum fyrir hreyfihamlaðra, háir þröskuldar og hár búnaður. Eigindlegar niðurstöður sýndu einnig fram á hindranir eins og þungar hurðir, þröng rými og vöntun á merkingum. Blönduð rannsóknaraðferð styrkti niðurstöður þar sem eigindlegi hlutinn dýpkaði þann megindlega. Þegar megindlegar og eigindlegar niðurstöður voru bornar saman kom í ljós misræmi og ólíkar áherslur hvað varðar þau atriði sem þyrfti að lagfæra. Niðurstöður gáfu til kynna mikilvægi þess að alhliða hönnun sé höfð að leiðarljósi í slíkum byggingum. Það væri liður í að gera þjónustu heilsugæslustöðva aðgengilega öllum. Lykilhugtök: Fötlun, alhliða hönnun, þátttaka, þjónusta heilsugæslustöðva og efnislegt aðgengi.