Reynsla kennara af fræðslu og forvörnum gegn kynferðislegu ofbeldi gagnvart börnum

Umfjöllunarefni rannsóknarinnar sem er lýst í þessari ritgerð er reynsla kennara á fræðslu og forvörnum gegn kynferðislegu ofbeldi gagnvart börnum. Það er í höndum kennara að vernda og fræða nemendur sína. Megin tilgangur rannsóknarinnar var að kanna og rannsaka reynslu kennara til forvarnarverkefna...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Elísabet Þórunn Jónsdóttir 1988-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2018
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/31107
Description
Summary:Umfjöllunarefni rannsóknarinnar sem er lýst í þessari ritgerð er reynsla kennara á fræðslu og forvörnum gegn kynferðislegu ofbeldi gagnvart börnum. Það er í höndum kennara að vernda og fræða nemendur sína. Megin tilgangur rannsóknarinnar var að kanna og rannsaka reynslu kennara til forvarnarverkefna og fræðslu gegn kynferðislegu ofbeldi gagnvart börnum. Að auki var tilgangur rannsóknarinnar að kanna reynslu og upplifun kennara á kynferðislegu ofbeldi gagnvart börnum og hvernig upplifun kennara er af háskólanámi í kennslufræði hvað varðar undirbúning og fræðslu til kennara á kynferðislegu ofbeldi gegn börnum. Með þessu er leitast eftir því að finna leiðir til að efla kennara í forvörnum gegn kynferðislegu ofbeldi gagnvart börnum. Leitað var svara við rannsóknarspurningunni með viðtölum við grunnskólakennara á Akureyri. Rannsóknaraðferðin er eigindleg með fyrirbærafræðilegri nálgun og notast var við rannsóknaraðferð Vancouver-skólans í fyrirbærafræði. Úrtakið samanstóð af átta þátttakendum sem eru grunnskólakennarar. Viðtölin voru greind í yfir og undirþemu sem lýstu reynslu kennara til fræðslu- og forvarnarverkefna gegn kynferðislegu ofbeldi gagnvart börnum. Textinn er flokkaður eftir innihaldi viðtala. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru að miklu leyti í samræmi við niðurstöður úr erlendum rannsóknum, sem sýna að kennarar hafi ekki þá þekkingu sem þarf til að sinna góðu forvarnarstarfi gegn kynferðislegu ofbeldi gagnvart börnum. Niðurstöður þessarar rannsóknar gefa til kynna að fræðsla til verðandi grunnskólakennara hvað varðar forvarnir gegn kynferðislegu ofbeldi gagnvart börnum, sé afar takmörkuð og jafnvel minni en erlendar rannsóknir gefa til kynna. Kennararnir voru meðvitaðir um skyldur sínar, töluðu um tilkynningarskyldu en einnig að þeir væru óöruggir þegar kæmi að því að tilkynna grun um kynferðislegt ofbeldi. Þeim fannst þeir þurfa að hafa eitthvað skjalfest í höndum sér. Það er samhljóma niðurstöðum erlendra rannsókna sem og innlendra. Niðurstöður leiddu í ljós að meðrannsakendur upplifðu óöryggi ...