,,Lífsleikni, það er nú meira ruglið'' : raunveruleg gildi lífsleikni og viðhorf til námsgreinarinnar

Verkefni þetta er unnið til B.Ed.-prófs í kennarafræðum við Kennaradeild Háskólans á Akureyri. Markmið þess er að kanna námsgreinina lífsleikni þar sem lögð er áhersla á að varpa fram tilgangi og markmiðum námsgreinarinnar auk þess sem fjallað er um þróun námsgreinarinnar, hvernig hún birtist fyrst...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Sólveig María Árnadóttir 1994-, Karen Ósk Kristjánsdóttir 1994-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2018
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/31100
Description
Summary:Verkefni þetta er unnið til B.Ed.-prófs í kennarafræðum við Kennaradeild Háskólans á Akureyri. Markmið þess er að kanna námsgreinina lífsleikni þar sem lögð er áhersla á að varpa fram tilgangi og markmiðum námsgreinarinnar auk þess sem fjallað er um þróun námsgreinarinnar, hvernig hún birtist fyrst í íslensku grunnskólakerfi og hvernig þróunin hefur verið. Í því samhengi er sérstök áhersla lögð á umfjöllun um Aðalnámskrá grunnskóla, þar sem bornar eru saman þær námskrár sem gefnar hafa verið út og það kannað hvernig núgildandi námskrá tekur á námsgreininni miðað við fyrri námskrár. Námsefni sem aðgengilegt er á íslensku fyrir nemendur á grunnskólastigi er tekið fyrir auk þess sem lagður er til námspakki sem hefur það að markmiði að mæta þörfum um samfélagsbreytingar og þörf á nýju og endurnýjuðu námsefni. Rauði þráðurinn í verkefninu er að kortleggja og varpa ljósi á raunveruleg gildi lífsleikni og á viðhorf til námsgreinarinnar, hvers vegna það er eins og raun ber vitni og hvaða afleiðingar viðhorfið kann að hafa. This project is a final assignment for a B.Ed.-degree within the Faculty of Education at the University of Akureyri. The aim of the project is to research life skills-based education, focusing on the aim and purpose of life skills as a subject. Additionally, there is a discussion about the development of the subject, with a focus on the Icelandic elementary school system. A special focus is on the National Curriculum, where the current delivery of life skills is compared to older versions. Educational material for secondary school is explored, and a new teaching package written by the authors is suggested, where the aim is to meet the needs of social changes and the need for new and renewed material. The main focus in this project is to map and highlight the teachers opinion and views about the life skills-based education, explore the reasons for these views and what consequences the views could have.