Sérstaða og sérþarfir örvhentra nemenda : sitja örvhentir nemendur við sama borð og rétthentir í íslensku skólakerfi?

Ritgerð þessi og meðfylgjandi kynningarbæklingur eru lokaverkefni mitt til fullnustu B.Ed.-gráðu við Háskólann á Akureyri. Markmið verkefnisins er að vekja athygli á sérstöðu og sérþörfum örvhentra nemenda og þeirri staðreynd að þeir sitja ekki við sama borð og rétthentir nemendur í íslensku skólake...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Kristín Ísleifsdóttir 1971-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2018
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/31094
Description
Summary:Ritgerð þessi og meðfylgjandi kynningarbæklingur eru lokaverkefni mitt til fullnustu B.Ed.-gráðu við Háskólann á Akureyri. Markmið verkefnisins er að vekja athygli á sérstöðu og sérþörfum örvhentra nemenda og þeirri staðreynd að þeir sitja ekki við sama borð og rétthentir nemendur í íslensku skólakerfi. Talið er að hlutfall örvhentra hafi verið á bilinu 3–20% í gegnum tíðina en er nú 10–12%. Um 40.000 núlifandi Íslendingar eru örvhentir og þar af eru 5000 grunnskólanemar. Könnun á viðhorfi og þekkingu kennaranema með tilliti til örvhentra nemenda sýndi að breytinga er þörf. Spurt var hvort örvhentir nemendur hefðu einhverja sérstöðu eða sérþarfir miðað við rétthenta og svöruðu 30% kennaranema því neitandi. Örvhentir nemendur mæta margvíslegum hindrunum dags daglega því skipulag skólastarfsins tekur ekki tillit til þeirra sérkennis. Það er skylda grunnskóla að sjá hverjum nemanda fyrir bestu tækifærum til náms og þroska. Skipulag skólastarfsins á að stuðla að því að sérhver nemandi nái sem bestum árangri miðað við eigin forsendur og á kennslan að taka tillit til þarfa og reynslu einstakra nemenda. Reikna má með 2–3 örvhentum nemendum í meðalstórum bekk og því nauðsynlegt að búa verðandi kennara betur undir að mæta þörfum örvhentra. Í ritgerðinni er ítarlega skýrt frá þeim þáttum sem greina örvhenta nemendur frá rétthentum og bent á gagnleg bjargráð til að mæta þörfum örvhentra nemenda til jafns við aðra. The following thesis is a final assignment toward a B.Ed. degree at the University of Akureyri. The aim of the thesis is to draw attention to the specific needs of left handed students and the fact that their needs are not being met within the Icelandic school system. The percentage of left-handers has ranged from 3–20% but is currently between 10–12%. At present, roughly 40,000 Icelanders are left handed, including 5000 elementary school students. The results of a survey regarding awareness of left-handed pupils’ specific needs among students of educational studies, confirm the need for action. When asked ...