Samþætting tónlistar og tungumálanáms

Verkefnið er lokað til 30.04.2043. Staða ensku á Íslandi er alltaf að breytast og er hún sífellt að verða algengari og stærri þáttur í okkar daglega lífi. Þessi þróun kallar á aukna enskukunnáttu fólks og breytinga á áherslum í skólakerfinu. Margir kennarar telja að þegar börn hefja grunnskólagöngu...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Fríða Kristín Hreiðarsdóttir 1995-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2018
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/31084
Description
Summary:Verkefnið er lokað til 30.04.2043. Staða ensku á Íslandi er alltaf að breytast og er hún sífellt að verða algengari og stærri þáttur í okkar daglega lífi. Þessi þróun kallar á aukna enskukunnáttu fólks og breytinga á áherslum í skólakerfinu. Margir kennarar telja að þegar börn hefja grunnskólagöngu sína séu þau jafnvel betri í ensku en Aðalnámskrá grunnskóla gerir ráð fyrir. Tónlist er stór þáttur í lífi hvers einstaklings en áhugi á tónlist byrjar að mótast strax í bernsku. Tónlist hefur áhrif á þroska og mótun barna og mikið af lærdómi barna í æsku fer fram í gegnum tónlist. Einnig á tónlist að spila ákveðnu hlutverki í menntakerfinu hvort sem það sé í gegnum eiginlega tónmennt eða almennt nám. Meginmarkmið þessarar ritgerðar er að varpa ljósi á jákvæð áhrif þess að nota tónlist í tungumálanámi og hvernig hægt er að samþætta tónmennt og tungumálakennslu til þess að skapa skemmtilegt og áhugavert námsefni fyrir nemendur. Einnig eru sex kennsluhugmyndir kynntar sem sýna hvernig hægt er að nota tónlist í enskukennslu á elsta stigi í grunnskóla. Kostir þess að nota tónlist í tungumálanámi eru óneitanlega margir og hafa margar rannsóknir sýnt fram á jákvæð áhrif hennar. Tónlist er hvetjandi fyrir nemendur og með notkun hennar er verið að virkja áhugasvið þeirra. Einnig stuðlar hún að fjölbreytni í námi og virkar sem uppbrot af hefðbundinni bóklegri kennslu. Tónlist hjálpar nemendum að læra orðaforða og stuðlar að tónlistarsköpun. Oft á tíðum líta kennarar á tónlist sem eitthvað sem gefur nemendum hvíld frá hinu eiginlega námi og líta ekki á hana sem kennsluaðferð en í rauninni ættu þeir að leita leiða til þess að nota tónlist í náminu sjálfu og fara að líta á hana sem kennsluaðferð með öllum þeim möguleikum og kostum sem hún ber. The status of English in Iceland is always changing and it is continually becoming more common and a bigger part of our lives. This development calls for increased competence in the English language and changes in the educational system. Many teachers believe that children have greater ...