Málörvun barna á leikskólaaldri : ýmis tæki til málörvunar og úrræði vegna málþroskaraskana
Verkefnið er lokað til 30.04.2020. Þessi ritgerð er lögð fram til B.Ed. prófs í leikskólakennara- fræðum í Háskólanum á Akureyri. Ritgerðinni er ætlað að varpa ljósi á hvað það er sem skiptir máli við þróun málsins, íslenskunnar, hjá börnum á leikskólaaldri. Leitast verður eftir svörum við hvað það...
Main Author: | |
---|---|
Other Authors: | |
Format: | Thesis |
Language: | Icelandic |
Published: |
2018
|
Subjects: | |
Online Access: | http://hdl.handle.net/1946/31081 |
Summary: | Verkefnið er lokað til 30.04.2020. Þessi ritgerð er lögð fram til B.Ed. prófs í leikskólakennara- fræðum í Háskólanum á Akureyri. Ritgerðinni er ætlað að varpa ljósi á hvað það er sem skiptir máli við þróun málsins, íslenskunnar, hjá börnum á leikskólaaldri. Leitast verður eftir svörum við hvað það er sem örvar málið okkar, hvort það sé eitthvað ákveðið sem skiptir meira máli en annað. Fjallað verður um málþroska barna á leikskólaaldri og mikilvægi þess að unnið sé rétt að því að tungumálið þroskist á þann veg að árangur fylgi barninu áfram út grunnskólagöngu þess. Meðal annars verður nokkrum smáforritum gerð skil og aðallega hvernig þau geta hjálpað til með málörvun. Þá verður fjallað um frávik í málþroska og þau áhrif sem slík frávik geta haft á börn á leikskólaaldri. Leitast verður eftir svörum við því hvort tvítyngi hafi áhrif eða geti jafnvel verið orsök málþroskaraskana. Snemmtækri íhlutun verður einnig gerð skil og þá ekki síst hvernig hún getur hjálpað þeim börnum sem eiga við málþroskaraskanir að stríða. Þá verður enn fremur fjallað um hlutverk talmeinafræðinga og hver áhrif þeirrar vinnu er. Auk þess verður litið til foreldra þeirra barna sem eiga við málþroskaraskanir að stríða og hvert þeirra viðhorf til þjónustu talmeinafræðina sé. Helstu niðurstöður ritgerðarinnar sýna að ef gripið er inn í nógu snemma og á réttan hátt getur það skipt sköpum fyrir börn þegar kemur að fráviki í máli og/eða tali. Ennþá er tenging á milli raskana í leikskóla og upp í 4. bekk í grunnskóla. Frekari rannsóknir þyrfti að vinna til að finna út hvað veldur og hvort snemmtæk íhlutun sé beitt eða beitt á réttan hátt. Einnig sýna niðurstöður að samvinna foreldra og kennara skiptir höfuð máli. This essay is written for a B.Ed. degree in Early Childhood Education from the University of Akureyri. The essay is supposed to look into what matters when it comes to the language development of icelandic children in their preschool years. The purpose of this essay is to seek answers to what stimulates the use of our language and ... |
---|