Í sama liði : sameiginlegt ferðalag kennara, foreldra og nemenda

Verkefnið er lokað til 26.04.2038. Ritgerð þessi er lokaverkefni til B.Ed. prófs við kennaradeild Háskólans á Akureyri vorið 2018. Viðfangsefni ritgerðarinnar er samstarf heimilis og skóla. Í samfélagi okkar heyrast mismunandi raddir og skoðanir um skólakerfi landsins. Umræðan snýr að niður...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Bergdís Sigfúsdóttir 1993-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2018
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/31080
Description
Summary:Verkefnið er lokað til 26.04.2038. Ritgerð þessi er lokaverkefni til B.Ed. prófs við kennaradeild Háskólans á Akureyri vorið 2018. Viðfangsefni ritgerðarinnar er samstarf heimilis og skóla. Í samfélagi okkar heyrast mismunandi raddir og skoðanir um skólakerfi landsins. Umræðan snýr að niðurstöðum PISA, heimanámi og öllu þar á milli. Óljóst virðist bæði kennurum og foreldrum til hvers er ætlast af þeim. Jafnt foreldrar og kennarar hafa skyldum að gegna þegar kemur að skólastarfi nemenda. Án samvinnu þessara tveggja aðila mun nemandi síður ná hámarks árangri, hvorki námslega né félagslega. Rannsóknarspurning verkefnisins er: Hvað einkennir farsælt samstarf heimilis og skóla og hvaða áhrif hefur það á nám og líðan nemenda? Ritgerðin var unnin með rýni í fræðilegar heimildir og í samtöl sem höfundur verkefnisins átti við þrjá aðila, tvo kennara og eitt foreldri. Ritgerðin er í þremur hlutum. Fyrsti hlutinn er fræðilegur bakgrunnur samstarf heimilis og skóla. Hvar ábyrgðin liggur samkvæmt lögum, hvernig fagmennska kennara birtist í samstarfinu og hverjar áskoranir samstarfsins eru sem og ávinningur þess. Í öðrum hluta er greint frá helstu niðurstöðum samtala sem höfundur átti við tvo kennara og eitt foreldri. Í þriðja hlutanum eru fræðin tengd við niðurstöðu viðtalanna og ályktanir höfundar settar fram. Ljóst er að ávinningur farsæls samstarfs heimilis og skóla er mikill bæði fyrir námsframvindu nemenda og líðan þeirra. Þrátt fyrir þá vitneskju virðist svo vera að samstarfið fái ekki þá áherslu sem það ætti að fá í skólastarfinu. Kennarar leitast ekki við að virkja hlutdeild foreldra og foreldrar sækjast ekki eftir að taka virkan þátt í skólastarfi barna sinna. Samstarf heimilis og skóla einkennist oft á tíðum af einhliða samskiptum þar sem skóli miðlar upplýsingum til heimilis. This thesis is towards a B.Ed. degree from the Faculty of Education at the University of Akureyri, spring semester 2018. The subject of this thesis is the ...