Útvistun í opinberri stjórnsýslu : hagræðingarmöguleikar og hindrarnir

Verkefnið er lokað Verkefnið fjallar um útvistun verkefna á sviði menningarmála í opinberri stjórnsýslu. Í fræðilegum hluta þess er fjallað um útvistun og staðsetningu hugtaksins í fræðunum. Tengsl útvistunar við hin viðfangsefni stjórnunar-, stefnumótunar- og samstarfsfræða eru skoðuð sem og helstu...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2009
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/3103
Description
Summary:Verkefnið er lokað Verkefnið fjallar um útvistun verkefna á sviði menningarmála í opinberri stjórnsýslu. Í fræðilegum hluta þess er fjallað um útvistun og staðsetningu hugtaksins í fræðunum. Tengsl útvistunar við hin viðfangsefni stjórnunar-, stefnumótunar- og samstarfsfræða eru skoðuð sem og helstu hvatar þess að ráðist er í útvistun verkefna. Rannsóknin byggist á hugmyndafræði leitandi rannsókna þar sem fjöldi viðtala er tekin við einstaklinga sem eru sérfróðir á ýmsum sviðum tengdum viðfangsefninu. Tilviksathugun er jafnframt unnin þar sem skoðað er hvaða rekstrarform er best til þess fallið að ná fram markmiðum sem sett eru með rekstri Menningarhúss á Akureyri. Niðurstöður bentu eindregið til þess að rétt væri að útvista rekstur Menningarhúss á Akureyri. Sú niðurstaða byggist m.a. á þeirri staðreynd að skilgreindir lykilþættir árangurs í rekstri eru skilvirkni í stjórnsýslu, afnám pólitískra tengsla og skýrt umboð stjórnenda en slíkt fellur ekki að því rekstrarumhverfi sem Akureyrarbær býður. Þessi niðurstaða er í samræmi við fræðilega umfjöllun um kjarnahæfni, kjarnastarfsemi og virðiskeðju í tengslum við útvistun. Nánari greining leiddi svo til þeirrar niðurstöðu að rekstrinum yrði best fyrirkomið í umgjörð sjálfseignarstofnunar. Mikill samhljómur var í niðurstöðum rannsóknarinnar en veikileiki hennar felst helst í því hversu einsleitur viðmælendahópurinn var og því hversu lítið liggur fyrir af greiningum og rannsóknum til samanburðar.