Mikilvægi hreyfingar á meðgöngu : reynsla barnshafandi kvenna af áhrifum hreyfingar á andlega líðan

Þessi rannsóknaráætlun er lokaverkefni til B.S. gráðu í hjúkrunarfræði við Háskólann á Akureyri. Tilgangur fyrirhugaðrar rannsóknar er að veita innsýn í hver sé reynsla barnshafandi kvenna af áhrifum hreyfingar á andlega líðan. Margar erlendar rannsóknar hafa leitt í ljós að andleg vanlíðan hjá barn...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Sigríður Steinunn Barðadóttir 1982-, Eyrún Árnadóttir 1989-, Ágústa Gísladóttir 1993-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2018
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/30901
Description
Summary:Þessi rannsóknaráætlun er lokaverkefni til B.S. gráðu í hjúkrunarfræði við Háskólann á Akureyri. Tilgangur fyrirhugaðrar rannsóknar er að veita innsýn í hver sé reynsla barnshafandi kvenna af áhrifum hreyfingar á andlega líðan. Margar erlendar rannsóknar hafa leitt í ljós að andleg vanlíðan hjá barnshafandi konum er talsvert algeng á meðgöngu ásamt því að vera vangreind og vanmeðhöndluð meðal heilbrigðisstarfsfólks sem sinnir þeim á meðgöngutímanum. Hreyfing á meðgöngu er einn þáttur sem sýnt hefur að hafi jákvæð áhrif á andlega og líkamlega líðan barnshafandi kvenna ásamt því að hafa góð áhrif á fóstur. Fáar barnshafandi konur fylgja settum ráðleggingum sem snúa að hreyfingu á meðgöngu og má áætla að það sé meðal annars vegna takmarkaðrar fræðslu, tímaleysis og þekkingar ljósmæðra eða annars heilbrigðisstarfsólks á þessum ráðleggingum. Það er því mikilvægt að fagaðilar auki þekkingu sína og veiti barnshafandi konum skilvirka fræðslu sem snýr að ráðleggingum um hreyfingu á meðgöngu og upplýsi um ávinning hennar fyrir móður og fóstur. Rannsóknarspurningin sem lagt var upp með er: Hver er reynsla barnshafandi kvenna af áhrifum hreyfingar á andlega líðan? Notast verður við eigindlega aðferðafræði byggða á fyrirbærafræði Vancouver-skólans við framkvæmd fyrirhugaðrar rannsóknar. Tekin verða opin djúpviðtöl við 6-10 barnshafandi konur sem verða valdar eftir fyrirfram ákveðnum skilyrðum. Er það von höfunda að með þessari rannsóknaraðferð sé hægt að veita meiri innsýn í viðfangsefnið. Lykilhugtök: meðganga, barnshafandi kona, andleg vanlíðan, hreyfing, heilsuefling. This study is a research thesis for a B.Sc. degree in nursing at the University of Akureyri. The main objective of this study was to examine how pregnant women experience the effects of exercise on their mental health. Research has shown that perinatal mental health issues are common and underdiagnosed and untreated by health professionals. Exercise during pregnancy is one factor that has a positive effect on women’s physical and mental health during ...