Lýðræði í leikskólum : hvernig má efla það?

Í þessu lokaverkefni er fjallað um lýðræði í leikskólum og leitað svara við því hvernig efla megi lýðræðisleg vinnubrögð í þeim. Skoðaðar verða hugmyndir um lýðræði almennt ásamt hugmyndum ýmissa fræðimanna um menntun í lýðræðislegum anda. Fjallað verður um börn og lýðræði, lýðræði í leikskólum og h...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Indíana Hrönn Arnardóttir, Kristjana Ösp Birgisdóttir
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2005
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/309
Description
Summary:Í þessu lokaverkefni er fjallað um lýðræði í leikskólum og leitað svara við því hvernig efla megi lýðræðisleg vinnubrögð í þeim. Skoðaðar verða hugmyndir um lýðræði almennt ásamt hugmyndum ýmissa fræðimanna um menntun í lýðræðislegum anda. Fjallað verður um börn og lýðræði, lýðræði í leikskólum og hvort og þá hvernig leikskólar geti verið lýðræðisleg samfélög. Skýrt verður frá viðhorfskönnun sem gerð var í þremur leikskólum á Akureyri og helstu niðurstöðum hennar. Í könnuninni var leitast við að fá viðhorf leikskólakennara til lýðræðis, hvernig þeir skilgreindu lýðræði, hvort lýðræði ríkti í þeirra leikskólum og hvernig hægt væri að efla lýðræðisleg vinnubrögð í leikskólum. Helstu niðurstöður sýndu að börn hafa ákveðin réttindi sem einstaklingar og ber leikskólanum að huga að þeim. Leikskólakennarar gegna viðamiklu hlutverki í leikskólanum og var sýnt fram á mikilvægi þeirra í eflingu lýðræðis ásamt þátttöku barnanna. Niðurstöður úr viðtölunum sýndu að flestir viðmælendurnir skilgreindu lýðræði á þann hátt að það sé einhverskonar stjórnarform þar sem lýðurinn eða fólkið ræður en ekki einhver einn. Leikskólakennararnir voru flestir sammála því að einhverskonar lýðræði ríkti í þeirra leikskóla en það mætti þó vera meira. Viðmælendur lögðu mikla áherslu á hlutverk starfsfólks við eflingu á lýðræðislegum vinnubrögðum og töldu að það þyrfti að fá fræðslu þeim tengdum og viðhalda þekkingu sinni ásamt því að vera meðvitað um hlutverk sitt gagnvart börnum og samstarfsfólki.